Share.

    4 Kommentare

    1. Mér finnst þetta vera ákveðið prinsipp og við eigum als ekki að vera að messa við þetta.

    2. Þetta er svolítið að fara að verða til þess að fólk sér ekki tilgang í að mynda eða skrá opinberlega fjölskyldueiningar.

      Ekki það jákvæðasta í heimi frá samfélagslegu sjónarhorni þótt að fjármálaráðuneytinu finnist þetta vera easy money þá gæti þetta valdið kostnaði síðar annarsstaðar fyrir ríkið.

    3. Upbeat-Pen-1631 on

      Markmiðið er að einfalda kerfið, loka glufum og fækka undanþágum. Að hætta samsköttun milli skattþrepa í tilviki hjóna og sambýlisfólks er bara einn liður í því.

      Ég fagna allri viðleitni til þess að einfalda kerfið því það er stútfullt af leiðum til þess að spara stórfé í skattgreiðslur ef þú hefur þekkingu á því eða ert í aðstöðu til þess að láta sérfræðinga fara yfir framtalið fyrir þig.

      Ég sé ekkert fúndemental að því að fólk borgi bara skatta af sínum tekjum óháð því hvað makinn eða samsköttunaraðilinn er með í tekjur.

      Ef fólk hefur stórar áhyggjur af afkomu tekjuminni fjölskyldna má ræða það að hækka persónuafsláttinn um einhverja þúsundkalla á mánuði.

    4. No_Ordinary_5417 on

      “Tekjuskattur verður ekki hækkaður á fólk” – Þorgerður Katrín við kynningu stjórnarsáttmála.

      Þessi aðgerð hefur eingöngu áhrif til hækkunar á greiddum tekjuskatti fólks – best case scenario stendur hann í stað. M.ö.o. þá stendur til að hækka tekjuskatt á fólk.

      Ég spyr því, hvort var Þorgerður að ljúga eða teljast þeir sem þetta hefur áhrif á ekki sem fólk?

    Leave A Reply