Share.

    2 Kommentare

    1. Nokkrir áhugaverðir bitar úr greininni:

      >>„*Ég lít bara á það í dag að ég sé leppur. Þetta félag er bara í vasanum á framkvæmdastjórn Sósíalistaflokks Íslands. Við erum þarna tvær skráðar fyrir Vorstjörnunni, við höfum ekki hugmynd um hvað er að gerast þarna og það er enginn sem vill losa okkur undan þessu með formlegum hætti.*“

      > Sigrún var prókúruhafi í Vorstjörnunni frá upphafi, en útskýrir fyrir blaðamanni að það hafi aðeins átt að vera tímabundið. Sjálf hafi hún dregið sig úr framkvæmdastjórn og hætt sem gjaldkeri flokksins 2022.
      >
      > „Védís dregur sig í hlé, og við vorum aldrei búin að halda aðalfund áður en ég fór. Svo var ég eiginlega ekkert að spá í þetta meira. Svo kemur 2023 og 2024. Núna 2025 var mér bent á það úti í bæ að ég væri enn stjórnarmaður í Vorstjörnunni,“ segir hún.
      >
      > Sigrún er enn prókúruhafi í Vorstjörnunni en þrátt fyrir það hefur hún ekki hugmynd um hvað á sér stað í félaginu, sem fær á annan tug milljóna árlega frá hinu opinbera.
      >>„*Löglega er ég ábyrg. Ég er ekki að ásaka neinn um neitt. En þetta er náttúrlega klemma sem ég er í. Það var aldrei ætlunin að vera einhver leppur. Þetta félag er bara í vasanum á framkvæmdastjórn Sósíalistaflokks Íslands.*“

      >Sem fyrr segir fær Vorstjarnan helminginn af styrk ríkisins til Sósíalistaflokksins. Hinn helmingurinn er látinn renna inn í Alþýðufélagið, sem er eigandi Samstöðvarinnar. Gunnar Smári er ritstjóri þess miðils og í fyrirtækjaskrá er hann skráður forráðamaður Samstöðvarinnar.

      >>„*Ég skil heldur ekki tilganginn með því að stofna þetta félag [Vorstjörnuna]. Eina skýringin sem ég hef fengið frá Gunnari Smára er að einstaklingur megi ekki styrkja stjórnmálaflokk um meira en 550 þúsund krónur á ári,*“ segir Sigrún.
      >
      >Sanna Magdalenda Mörtudóttir, borgarfulltrúi flokksins og forseti borgarstjórnar, styrkir hins vegar Vorstjörnuna um 100 þúsund krónur á mánuði, eða 1,2 milljónir á ári. Sigrún spyr sig hvort það sé nægilegt tilefni til að stofna heilt félag. „Af hverju má hún ekki bara borga flokknum 550 þúsund á ári og flokkurinn bara leigir húsnæðið? Ég bara skil þetta ekki.“

      >Sjá má í fundargerð framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins frá því í október á síðasta ári að til skoðunar hafi verið að breyta Vorstjörnunni í lífsskoðunarfélag. Sigrún segir að hún telji að ekki hafi verið vel tekið í hugmyndina, sem hún heldur að hafi verið frá Gunnari Smára komin.

    Leave A Reply