Share.

    1 Kommentar

    1. >Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir forstjóri Varðar segir þetta endurgjaldslausan stuðning fyrir fólk sem reynir að breyta aðstæðum sínum vegna ofbeldis í nánu sambandi. Skilyrði er geta staðfest að hafa sótt aðstoð fagaðila vegna ofbeldisins.
      >
      >„Það er eins og Kvennaathvarfið, Hof teymið, þolendamiðstöð Landspítalans og Bjarkarhlíð. Þeir fagaðilar staðfesta að viðkomandi sé að breyta aðstæðum sínum og þá komum við með bæturnar,“ segir Guðbjörg.
      >
      >Bætur eða fjárhagsstuðningur eru 570 þúsund krónur á þremur mánuðum eða 190 þúsund á mánuði. Greiðslurnar eiga ekki að hækka iðgjöld heimilistryggingarinnar.
      >
      >Fyrirmyndin er meðal annars frá tryggingafélaginu Folksam í Svíþjóð og alþjóðlega félaginu AXA segir Guðbjörg. Trúnaður við þolanda er lykilatriði og skiptir engu máli hver á heimilinu er skráður fyrir tryggingunni á heimilinu, hvort sem það er til dæmis ofbeldismaðurinn eða annar þar sem heimilistrygging á við alla á sama heimili.

      Ég hef engu við þetta að bæta. Vildi bara signal-boosta þessu ef ske kynni að einhver hér gæti gert eitthvað nytsamlegt við þessar upplýsingar. Tugir hafa sótt um nú þegar – vonandi veit á betra hjá þeim.

    Leave A Reply