Share.

    5 Kommentare

    1. AnunnakiResetButton on

      >*Í frétt RÚV var farið rangt með nokkrar staðreyndir, t.d. var fyrrverandi elskhugi Ásthildar sagður hafa verið 15 ára er þó hófu samband árið 1989, en hann var 16 ára og lögráða samkvæmt þágildandi lögum. Í öðru lagi sagði að Ásthildur hefði verið leiðbeinandi mannsins í starfi trúarsöfnuðar, en það reyndist vera rangt. Í þriðja lagi var greint frá ásökunum mannsins um að Ásthildur hefði tálmað umgengni hans við son þeirra, en lítið hald reyndist vera í þeim ásökunum.*

    2. bara hérna á reddit hefur þetta verið ein steiktasta múgæsing sem ég hef séð, get rétt svo ímyndað mér hversu slæmt þetta hefur verið þá á FB og moggablogginu..

    3. Gjörsamlega steikt mál í alla staði, ég vona að Áshildur fari ekki af þingi þrátt fyrir þetta.

    4. Gæti verið að hún fari full-frjálslega með staðhæfingar?

      Í Lúkasarmálinu voru nafngreindir unglingsstrákar ranglega sakaðir um að pynta og myrða hund sem var bara týndur.

      Hér var ráðherra réttilega sökuð um að eignast barn með stráki 7 árum yngri en hún þegar hún var 22/3 ára. Fréttastofa fór hinsvegar rangt með hvoru megin við afmælið hanns var hægt að sýna fram á að þau byrjuðu að sofa saman (skv. henni var hann nýorðinn 16 ára) og hvort hún var formlegur leiðbeinandi hanns í trúarstarfinu, eða bara einhver miklu eldri í starfinu sem var dugleg að tala við hann.

      Að láta sem svo að sonur hennar geti fullkomlega lýst því hvort umgengni var tálmuð þegar hann var ómálga barn er svo kjánalegt.

      Það er alveg hægt að segja að manni þykir þetta ekkert stórmál (mér þykir meira stórmál að hún fari heim til gömlu konunnar á herrans árinu 2025 til þess að segja henni til) – án þess að láta sem svo að þetta séu einhverjar ofsóknir byggðar á engu (eins og Lúkasarmálið var).. Að gera það tekur allan trúverðugleika af þessari blessuðu fréttakonu.

    5. ultr4violence on

      Hvað er eiginlega í gangi hjá rúv? Þetta er semsagt í grunninn bara gróusaga frá einhverri konu útí bæ sem vildi ná höggi á þessari Ásthildi? Sem rúv fer með einsog fyrsta flokks fréttaheimild. Án þess að sannreyna eða rannsaka neitt sem hún segir? Bæta svo við einhliða frásögn barnsfaðirs um meinta tálmun, aftur án þess að leitast til að sannreyna frásagnirnar.

      Þetta er eitthvað sem ég myndi kyrfilega búast við frá mogganum, en hvað í andskotanum er í gangi hjá rúv til að þetta sé unnið svona? Þetta á að vera síðasta vígið í faglegri fréttamennsku hér, þar sem að vísir og mogginn eru lítið nema áróðursvélar kvóta og fjármagsneigenda.

    Leave A Reply