Die Zeitleiste im Fall von Ásthildur Lóa: Premierminister erhielt eine Woche lang Informationen

    https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2025-03-21-timalinan-i-mali-asthildar-lou-forsaetisradherra-fekk-upplysingar-fyrir-viku-439442

    Von DTATDM

    Share.

    4 Kommentare

    1. Tók ekki nema klukkutíma að fyrir nýjar upplýsingar að koma fram og sýna að fyrri ályktun hjá mér var röng. Ætti að læra lexíu og sleppa því að draga ályktanir of snemma. Líklegt að u/11Mhz hafi eitthvað til síns máls:

      9. mars kemur fyrsta beiðnin inn um fund.

      11. mars ítrekun. Forsætisráðherra segir að þetta sé eina skipti sem þau spyrja Ásthildi hvort hún þekki viðkomandi.

      13. mars fær forsætisráðuneytið að vita nkl. um hvað málið snýst. Ólöf segist muni láta heyra í sér ef ekkert verður gert í því

      14. mars fær hún fréttir um að það verði engin fundur við Kristrúnu um málið.

      16. mars hefur Ásthildur Lóa frétt af þessu og hringir í konuna.

      17. mars hringir Ásthildur Lóa í konuna þrisvar eða fjórum sinnum og fer heim til hennar kl. 10 um nótt.

      20. mars málið fer í fjölmiðla

      20. mars Ásthildur segir af sér á innan við klukkutíma.

      Kristrún sagði að engin samskipti voru milli forsætisráðuneytis og menntamálaráðuneytis milli 12. og 19. mars. Það kæmi mér mjög á óvart m.v. tímalínu. Eðlilegar spurningar:

      * Verður Ásthildur brjálæðislega frantic 16. og 17. eftir að fá spurninguna „veistu hver þetta er?“ 11. mars? Eða er nokkuð augljóst að hún fær aftur fréttir um þetta frá þeim milli 13. og 16.? Hvaða upplýsingar fékk Ásthildur?

      * Það lítur sannarlega út eins og ekkert hafi verið gert innan forsætisráðuneytis í viku. Konan látin vita að hún eigi ekki fund með Kristrúnu, og skv. forsætisráðuneyti voru engin samskipti við menntamálaráðuneyti. Voru þau að gera eitthvað í þessu?

      * Hefði Kristrún farið fram á að Ásthildur segði af sér hefði þetta ekki farið í fjölmiðla? Aðrir notendur hafa talað um að þetta taki tíma etc. En það er ekki eins og einhver ferli hafi verið í gangi svo við vitum til – bara láta Ásthildi vita af þessu og segja Ólöfu að það verði ekki fundur. Svo er ekki eins og það tók hana langan tíma að segja af sér eftir þetta fór í fjölmiðla.

    2. Hvernig ætli viðbrögðin væru samt ef þetta væri karl þingmaður?

      „Þetta gerðist fyrir 40 árum, Ísland var öðruvísi þá“

      „Verið að dæma hann fyrir eitthvað sem gerðist þegar hann var ungur“

      Ekki að mér finnist þetta ekki rangt. Fullorðin manneskja með ungling og trúar vinkillinn gefur mér „ick“ en væri ekki hissa ef einhverjir þingmenn hefðu verið að „Sveinn andrast“ seinustu 5 – 10 ár og sitja með örvandi enni við að verða „metúaðir“.

    3. Áhugavert. Hefði Ásthildur náð að sannfæra konuna um að þegja yfir þessu, hvað var planið hjá Kristrúnu? Ætlaði hún bara að þegja líka? Hún var búin að vita af þessu í viku, en ekkert búin að gera.

    4. jafetsigfinns on

      „Ólöf sendi Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, tölvupóst þennan sama dag.“

      Bíddu nú við, hverju missti ég af?

    Leave A Reply