Share.

    4 Kommentare

    1. og ef það er einhver sem heldur að það sé ekki hægt að svindla á rafrænum skilríkjum, þá hefur sá aldrei notað rafræn skilríki.

      Í daglegu lífi fórnum við þessari áhættu fyrir hentugleika en sama jafna á ekki við í kosningum.

    2. Ég var í fyrstu all in í rafrænar kosningar en svo hugsaði ég þetta aðeins betur og sá að það væri eiginlega ekki hægt að framkvæma þær með algjörri nafnleynd.

      Analog all the way.

    3. Jamm svo er það hvort við viljum menningarlega fara leiða þessa leið.

      Við staðhæfum (hægt að deila um það) að við séum með elsta starfandi þing í heiminum. Skiptir ekki máli hvort það sé satt eða ekki, mörgum finnst þetta vera eitthvað sem vert er að minnast á.

      Við ákváðum með mesta meirihluta í einhverri þjóðarkosningu einhversstaðar að hætta að LARPa eins og við værum á 18. aldar veislu og losuðum okkur við konung. Við erum einnig fyrsta þjóðin til að kjósa kvenkyns þjóðhöfðingja.

      Gildi þessa hverfur einhvernveginn fyrir mér ef ég þarf bara að skrá mig inn í sveittan símann til að kjósa. Öll þessi umræða er um að það þurfi að einfalda hlutina, hvað er svona flókið? Það er kosningaskrifstofa sem er oft í göngufæri sem þarf að mæta í. Þetta tekur ekki langan tíma og er hluti af hefðinni.

      Ég veit að sumir benda á að fólk er svo upptekið og það kemst ekki á þessum degi… Ókei. Ræðum þá í staðinn hvað í andskotanum er að samfélaginu að það að ganga til kosninga er svona erfitt því ekki sé ég lausnina í því að setja þetta í símann minn svo ég geti gengið frá þessu einn tveir og þrír og svo ég truflist ekki við það að hafa ekki tíma í allt annað og stressið sem þar fylgir.

    Leave A Reply