Share.

    6 Kommentare

    1. Icelander2000TM on

      Ef það er eitthvað sem öfgahægrið og öfgavinstrið á sameiginlegt þá er það að hata alþjóðakerfið.

    2. Á myndinni sést Sigríður Andersen úr Miðflokknum og Jökull Solberg úr Sósíalistaflokknum taka undir hvert annað og fagna því að Trump ætlar bókstaflega að færa Pútín Úkraínu á silfurfati. Þetta er ótrúlegt og sýnir manni enn og aftur að því öfgafyllri sem hugmyndafræði verður, því nær virðast öfgarnar færast hvor annarri.

      Þeir tala um að það sé hægt að semja um frið, eins og það hafi aldrei verið reynt áður. Krafa Rússlands hefur ávallt verið sú að allir aðrir láti undan og þeir vinni.

      **ATH:** Þetta á alls ekki við um alla í Sósíalistaflokknum – ég þekki nokkra sem gjörsamlega hata þessa Rússadýrkun í flokknum, styðja Úkraínu og eru uggandi yfir þessari þróun í evrópu og Þeir bókstaflega þola ekki þá einstaklinga innan Sósíalistana sem kokgleypa áróður kreml. En það eru nokkrir innan flokksins, ásamt fólki í Miðflokknum og öðrum öfgaflokkum, sem eru algjörar Pútín sleikjur.

    3. Við hérna á vinstri væng sem berjumst ötullega á móti upprisu fasisma erum ekkert svakalega mikið að dást að frjálslyndu fólk sem setur okkur öll undir sama hatt, og kallar það að taka á fasisma.

      Ég finn enga samstöðu með þessu fólki þrátt fyrir að það kalli sig Sósíalista, og skal skýrt taka undir að partur af Sósíalistaflokknum eru týndir upp að því marki að þeir styðja við heimsvaldastefnu Rússlands og alla þá ömurð sem fylgir henni sem og öðrum heimsvaldastefnum – og kalla það friðarstefnu. Friðarstefnu sem fólkið í Ukraínu á að borga með blóði sínu, svo að það þurfi ekki að verja sig sjálfviljugt. Það er ekki heil brú í því að halda því fram að þú getur framkallað frið við ofbeldisfólk með uppgjöf.

      Ég skal líka alveg viðurkenna að það truflar mig þegar hestaskeifukenningin er notuð af vel meinandi fólki – þetta er byggist á áróður nasista frá fyrri heimstyrjöldinni, og gerir ekkert nema grafa undan samstöðu milli nýja vinstrisins, og félagslega frjálslynds fólks – og kannski er það einmitt tilgangurinn.

      Svo ég veit ekki lengur hvort höfundur er vel meinandi fólk, eða að reyna að spilla samstöðu milli þeirra sem annars myndu finna sér grundvöll til að berjast saman á móti upprisu fasisma.

      [Viðbót: Það er alveg skýrt að höfundur er enn vel meinandi fólk.](https://www.reddit.com/r/Iceland/comments/1iuo2nr/comment/mdyvqbe/)

    4. StefanOrvarSigmundss on

      Þessi Sigríður er ein versta manneskja sem hefur verið í íslenskum stjórnmálum. Hún er pottþétt þessi manngerð sem myndi fyrirskipa aftökur ef hún hefði verið ráðherra í öðru stjórnmálaumhverfi. Ég gleymi aldrei afstöðu hennar gagnvart stríðinu á Gaza fyrir kosningarnar síðustu á einum fundi á HÍ-svæðinu. Hún taldi allar aðgerðir Ísraelshers réttlætanlegar og stutti þær fullkomlega. Meira að segja sjálfstæðismönnum á fundinu blöskraði.

    5. Tröllalegt svar hjá þessum Jökli að spurja hvort ekki megi vera samtal við Rússa þegar að það er Úkraína sjálf (og evrópa í heild) sem að er ekki hleypt í samtalið.

    6. En varðandi hestaskeifukenninguna, að þá sá maður hana í action í covid þegar að allskonar hippar og anarkistar og annað fólk sem að fram að því taldist til vinstri var að marserea hlið við hlið með nýnastum og öðru fjar hægri fólki.

      Þetta fólk er svo búið að drekka allt Flavour-Aidið frá hægri influencurum og nú er allt morandi í „free spirit“ og „sceptics“ sem að eru að éta sveppi í podcöstum en eru á sama tíma bullandi social conservatives og elska trump & putin.

      Það er rosalegt rannsóknarverkefni til framtíðar hversu mikin skaða FB og YouTube hafa valdið samfélaginu.

    Leave A Reply