Share.

    5 Kommentare

    1. > Flokk­ur fólks­ins sendi Skatt­in­um til­kynn­ingu um breytta skrán­ingu sem stjórn­mála­sam­tök í lok janú­ar 2024, ein­mitt þegar verið var að greiða út rík­is­styrki til stjórn­mála­flokka. Til­kynn­ing­unni var hins veg­ar veru­lega ábóta­vant, svo Skatt­ur­inn gerði at­huga­semd­ir við hana og leiðbeindi flokkn­um um úr­bæt­ur.

      Helstu rök fjármálaráðherra voru að FF hefði ekki fengið leiðningar frá Skattinum og þyrfti því ekki að skila pening sem félagið ætti ekki rétt á.

      Nú kemur í ljós að leiðbeiningar frá Skattinum lágu fyrir og þar með (léleg) rök gegn því að skila fallin.

      Nú hlýtur að koma krafa um endurgreiðslu peninga sem þau áttu engan rétt á.

    2. Hver skyldi nú hafa leiðbeint snjöllum þegar þeir flokkuðu upp sinni skráningu?

    3. Lýðræðið okkar byggist upp á því að við erum með ríkisstyrkta stjórnmálaflokka. Það er enginn vilji hjá neinum sem skiptir máli til að fara með þetta mál lengra hvort sem það er „lagalega rétt niðurstaða“ eða ekki þar sem markmiðum laganna er fullnægt. Það er mikilvægara og réttara að stjórnmálaflokkarnir okkar verði ekki gjaldþrota heldur en að þeir séu hannaðir á einhverju lagatæknilegu smáatriði sem engu máli skiptir. Eðli málsins samkvæmt er Flokkur Fólksins atjórnmálaflokkur, hann hefur aldrei verið neitt annað en stjórnmálaflokkur. Ég er ekki aðdáandi flokks fólksins (þó að ég hafi íhugað að senda Ingu Sæland ostakörfu þegar hún skellti hurðinni á nefið á Einari einnota núna um daginn) en hann er samt mikilvægur hlekkur í stjórnmálum íslands og nógu margir sem finnst hann vera málsvari sinn til að hann eigi rétt úr þessum sjóði.

    Leave A Reply