* Nær öllu millilandaflugi hefur verið aflýst.
* Vegir í öllum landshlutum eru á óvissustigi.
* Veðurfræðingur segir óveðrið munu skella á með miklum látum.
* Spáir hviðum upp undir 50 m/s, „staðbundið á norðurlandi og ekki síður fyrir austan“.
* Foreldrar á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að sækja börn sín í skólann.
* Vegir um allt land á óvissustigi, sem þýðir að þeim getur verið lokað með skömmum fyrirvara.
* Óvissustig tekur gildi á Reykjanesbraut, Hellisheiði, Þrengslum og Mosfellsheiði ýmist klukkan 12 og 13.
* Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði hefur verið lokað
* [Samkvæmt RÚV hefur Öxnadalsheiði verið opnuð frá 12 og stefnt að halda veginum opnum til klukkan 14](https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2025-02-05-ofsavedri-spad-a-landinu-i-dag-almannavarnir-lysa-yfir-ovissustigi-435163).
* Óvissustig Almannavarna gildir frá og með klukkan 12 í dag og gildir þar til veðrið gengur niður á morgun.
* Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að ekkert ferðaveður sé á landinu næsta sólarhringinn og fólk er beðið að fylgjast vel með á vef [Veðurstofunnar](https://vedur.is).
>* Rauðar viðvaranir hafa nú verið gefnar út fyrir meirihluta landsins vegna þess ofsaveðurs sem spáð er á næsta sólarhring.
>* „Það verður fært yfir á rautt síðdegis og fram á kvöld. Svo mun draga úr veðrinu um tíma í nótt,“ segir Haraldur Eiríksson, verðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.
>* „Svo verður endurtekið efni aftur í fyrramálið. Klukkan 8 í fyrramálið verður þetta komið aftur um mestallt land. Seinni partinn á morgun mun veðrinu slota.“
>Óli Þór Árnason veðurfræðingur hjá Veðurstofunni tjáði fréttastofu í gær að óveðrið fram undan gæti minnt á vonskuveðrið 2015. Hvernig var það velta lesendur fyrir sér? Fjölda myndbanda frá veðrinu sem olli meðal annars miklum vatnselg í Mosfellsbæ og víðar má sjá [í fréttinni](https://www.visir.is/g/20252684113d/appel-sinu-gular-vidvaranir-gaeti-minnt-a-o-vedrid-2015).
> * Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðurland, Strandir og Norðurland vestra frá klukkan 16-20 í dag.
> * Á Faxaflóa og Breiðafirði eru rauðar veðurviðvaranir í gildi frá klukkan 16-19.
> * Á Norðurlandi eystra taka rauðar veðurviðvaranir gildi klukkan 17 og eru í gildi til klukkan 22.
> * Á Austurlandi að Glettingi verða rauðar viðvaranir í gildi frá klukkan 18 og til klukkan 4, aðfararnótt fimmtudags.
> * Á Miðhálendinu, Austfjörðum og Suðausturlandi taka rauðar viðvaranir gildi klukkan 20 í kvöld og gilda fram yfir miðnætti.
>Ferðamálastofa hefur gefið út tilmæli til fyrirtækja í ferðaþjónustu vegna yfirvofandi óveðurs.
>
>„Við hvetjum alla sem eru í samskiptum við ferðafólk að tryggja öryggi og vellíðan viðskiptavina sinna. Við biðjum ykkur að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða til að upplýsa og undirbúa ferðalanga, hvetja fólk til að halda kyrru fyrir og gera allt sem þið getið til að fólk sé ekki á ferðinni,“ segir í tilkynningu.
>
>Þá eru tilgreind nokkur mikilvæg atriði sem þörf er á að upplýsa ferðamenn um:
>
>* **Upplýsið viðskiptavini um að spáð er miklum vindi og úrkomu og leggið áherslu á mögulega áhættu og nauðsyn varúðar.**
>* **Ráðleggið viðskiptavinum að vera ekki á ferðinni.**
>* **Bendið viðskiptavinum á að vegir séu víða lokaðir og biðjið þá að fylgjast reglulega með vef Vegagerðarinnar, Veðurstofu og fréttum innlendra miðla fyrir nýjustu veðurspár og aðstæður á vegum.**
>* **Bjóðið fólki upp á aðstoð við að skipuleggja og breyta ferðaplönum sínum.**
>Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir hættustigi almannavarna vegna þess veðurs sem spáð er næsta sólarhringinn.
>
>Yfirlýsing ríkislögreglustjóra kemur aðeins rúmum einum og hálfum klukkutíma eftir að óvissustigi var lýst yfir.
>
>Hættustigið er sagt munu gilda frá og með kl. 15 í dag og þar til veðrið gengur niður á morgun.
7 Kommentare
Fint veður og gott skjól hérna á svölunum hjá mér, snúa í norðurátt. Er að spá í að kíkja út með bók.
Það verður lítið spilað í dag og á morgun ef fokking wifi-ið fýkur út á ballarhaf.
[Vaktin hjá Vísi](https://www.visir.is/g/20252684784d/vaktin-aftakaverdur-gengur-yfir-landid)
[Fréttavakt RÚV](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-02-05-ofsavedri-spad-a-landinu-i-dag-almannavarnir-lysa-yfir-ovissustigi-435163)
mbl.is – [Forsíða](https://www.mbl.is/frettir/)
Vegagerðin – [Umferðin.is](https://umferdin.is/)
Veðurstofa Íslands – [Veður.is](https://vedur.is)
—
**12:06** – Vísir – **[Skellur á með látum, versnar hratt og hviður jafnvel yfir 50 m/s](https://www.visir.is/g/20252684730d/skellur-a-med-latum-versnar-hratt-og-hvidur-jafnvel-yfir-50-m-s)**.
* Nær öllu millilandaflugi hefur verið aflýst.
* Vegir í öllum landshlutum eru á óvissustigi.
* Veðurfræðingur segir óveðrið munu skella á með miklum látum.
* Spáir hviðum upp undir 50 m/s, „staðbundið á norðurlandi og ekki síður fyrir austan“.
* Foreldrar á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að sækja börn sín í skólann.
* Vegir um allt land á óvissustigi, sem þýðir að þeim getur verið lokað með skömmum fyrirvara.
* Óvissustig tekur gildi á Reykjanesbraut, Hellisheiði, Þrengslum og Mosfellsheiði ýmist klukkan 12 og 13.
* Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði hefur verið lokað
* [Samkvæmt RÚV hefur Öxnadalsheiði verið opnuð frá 12 og stefnt að halda veginum opnum til klukkan 14](https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2025-02-05-ofsavedri-spad-a-landinu-i-dag-almannavarnir-lysa-yfir-ovissustigi-435163).
**12:50** – RÚV – **[Samhæfingarmiðstöð Almannavarna virkjuð klukkan tvö](https://ruv.is/frettir/innlent/2025-02-05-ofsavedri-spad-a-landinu-i-dag-almannavarnir-lysa-yfir-ovissustigi-435163)**
**12:50** – RÚV – **[Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi](https://ruv.is/frettir/innlent/2025-02-05-ofsavedri-spad-a-landinu-i-dag-almannavarnir-lysa-yfir-ovissustigi-435163)**
* Óvissustig Almannavarna gildir frá og með klukkan 12 í dag og gildir þar til veðrið gengur niður á morgun.
* Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að ekkert ferðaveður sé á landinu næsta sólarhringinn og fólk er beðið að fylgjast vel með á vef [Veðurstofunnar](https://vedur.is).
**13:34** – mbl.is – **[Fylgstu með óveðrinu ganga yfir](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/02/05/fylgstu_med_ovedrinu_ganga_yfir/) á gagnvirku korti**
**13:41** – mbl.is – **[Rauðar viðvaranir gefnar út](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/02/05/raudar_vidvaranir_gefnar_ut/)**
>* Rauðar viðvaranir hafa nú verið gefnar út fyrir meirihluta landsins vegna þess ofsaveðurs sem spáð er á næsta sólarhring.
>* „Það verður fært yfir á rautt síðdegis og fram á kvöld. Svo mun draga úr veðrinu um tíma í nótt,“ segir Haraldur Eiríksson, verðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.
>* „Svo verður endurtekið efni aftur í fyrramálið. Klukkan 8 í fyrramálið verður þetta komið aftur um mestallt land. Seinni partinn á morgun mun veðrinu slota.“
**13:45** – Vísir – **[Gæti minnt á óveðrið 2015](https://www.visir.is/g/20252684113d/appel-sinu-gular-vidvaranir-gaeti-minnt-a-o-vedrid-2015)**
>Óli Þór Árnason veðurfræðingur hjá Veðurstofunni tjáði fréttastofu í gær að óveðrið fram undan gæti minnt á vonskuveðrið 2015. Hvernig var það velta lesendur fyrir sér? Fjölda myndbanda frá veðrinu sem olli meðal annars miklum vatnselg í Mosfellsbæ og víðar má sjá [í fréttinni](https://www.visir.is/g/20252684113d/appel-sinu-gular-vidvaranir-gaeti-minnt-a-o-vedrid-2015).
**13:47** – RÚV – **[Rauð viðvörun á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 16 til 19 í dag.](https://ruv.is/frettir/innlent/2025-02-05-ofsavedri-spad-a-landinu-i-dag-almannavarnir-lysa-yfir-ovissustigi-435163)**
**13:51** – RÚV – **[Rauðar viðvaranir um nánast allt land í dag](https://ruv.is/frettir/innlent/2025-02-05-ofsavedri-spad-a-landinu-i-dag-almannavarnir-lysa-yfir-ovissustigi-435163)**.
> * Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðurland, Strandir og Norðurland vestra frá klukkan 16-20 í dag.
> * Á Faxaflóa og Breiðafirði eru rauðar veðurviðvaranir í gildi frá klukkan 16-19.
> * Á Norðurlandi eystra taka rauðar veðurviðvaranir gildi klukkan 17 og eru í gildi til klukkan 22.
> * Á Austurlandi að Glettingi verða rauðar viðvaranir í gildi frá klukkan 18 og til klukkan 4, aðfararnótt fimmtudags.
> * Á Miðhálendinu, Austfjörðum og Suðausturlandi taka rauðar viðvaranir gildi klukkan 20 í kvöld og gilda fram yfir miðnætti.
14:10 – mbl.is – **[Hvetja fyrirtæki til að láta ferðamenn vita](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/02/05/hvetja_fyrirtaeki_til_ad_lata_ferdamenn_vita/)**
>Ferðamálastofa hefur gefið út tilmæli til fyrirtækja í ferðaþjónustu vegna yfirvofandi óveðurs.
>
>„Við hvetjum alla sem eru í samskiptum við ferðafólk að tryggja öryggi og vellíðan viðskiptavina sinna. Við biðjum ykkur að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða til að upplýsa og undirbúa ferðalanga, hvetja fólk til að halda kyrru fyrir og gera allt sem þið getið til að fólk sé ekki á ferðinni,“ segir í tilkynningu.
>
>Þá eru tilgreind nokkur mikilvæg atriði sem þörf er á að upplýsa ferðamenn um:
>
>* **Upplýsið viðskiptavini um að spáð er miklum vindi og úrkomu og leggið áherslu á mögulega áhættu og nauðsyn varúðar.**
>* **Ráðleggið viðskiptavinum að vera ekki á ferðinni.**
>* **Bendið viðskiptavinum á að vegir séu víða lokaðir og biðjið þá að fylgjast reglulega með vef Vegagerðarinnar, Veðurstofu og fréttum innlendra miðla fyrir nýjustu veðurspár og aðstæður á vegum.**
>* **Bjóðið fólki upp á aðstoð við að skipuleggja og breyta ferðaplönum sínum.**
—
## **14:21** – mbl.is – **[Hættustigi almannavarna lýst yfir](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/02/05/haettustigi_almannavarna_lyst_yfir/)**
>Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir hættustigi almannavarna vegna þess veðurs sem spáð er næsta sólarhringinn.
>
>Yfirlýsing ríkislögreglustjóra kemur aðeins rúmum einum og hálfum klukkutíma eftir að óvissustigi var lýst yfir.
>
>Hættustigið er sagt munu gilda frá og með kl. 15 í dag og þar til veðrið gengur niður á morgun.
https://youtu.be/GR_LAmStpH0?si=MJr-ctHtfRctYeS1
finnst að þetta ætti að vera nýja intro þemað hjá veðurfréttum.
Skemmtileg (veður) staðreynd, síðan þetta kerfi var tekið upp hefur aldrei verið gefin út rauð-viðvörun fyrir vestfirðina (skilst mér)
Svona í ljósi þess að margir íslendingar tengja bara vestfirðina við vont veður og slæma færð.
Fokking Dagur, nýkominn á þing og strax búinn að RÚSTA VEÐRINU!!
Ég held að þetta er fyrsta skipti þegar það er skársta veðrið á Vestfjörðum