Share.

    3 Kommentare

    1. Það var bara verið að birta þessa[ grein í morgun](https://www.visir.is/g/20262948056d/barn-fyrir-bil)

      „Í fyrradag var ekið á átta ára dreng í Mosfellsbæ. Hann hlaut höfuðáverka og blóðnasir. Ökumaðurinn ók af vettvangi og skildi drenginn eftir grátandi. Fréttin birtist í gærmorgun og verður trúlega gleymd eftir nokkra daga. Eins og svo margar aðrar.

      Fyrir rúmum tveimur vikum var ekið á fimm ára barn á reiðhjóli í Hveragerði. Barnið slapp með minniháttar áverka og samkvæmt lögreglu verða engin eftirmál af málinu. Síðasta haust var ekið á þrjú börn á sömu gatnamótunum við Laugarnesskóla á innan við mánuði og var þar meðal annars sjálfri sólinni kennt um. Foreldrar höfðu þá um árabil kvartað undan hættulegum aðstæðum og tóku að lokum sjálfir til þess ráðs að standa vörð við gangbrautina til að tryggja öryggi barnanna sinna.

      Þetta eru engin einsdæmi. Við lauslega yfirferð íslenskra fréttamiðla síðustu tveggja ára má finna frásagnir af því að ekið hafi verið á að minnsta kosti 22 börn hér á landi. Tuttugu og tvö börn sem voru úti að ganga, hjóla eða einfaldlega fara ferða sinna. Og það eru aðeins þau sem rötuðu í fréttir.

      Hvers vegna er ekki meiri reiði yfir þessu? Hvernig stendur á því að ítrekaðar fréttir af ákeyrslum á börn virðast vart raska ró okkar? Við lesum að barn hafi sloppið með skrekkinn, öndum léttar og höldum áfram með daginn. Eins og það sé ásættanleg niðurstaða að átta ára barn hafi aðeins fengið blóðnasir þegar ekið var á það.

      Kannski segir þetta eitthvað um hversu undarlega skekkt viðhorf okkar til umferðaröryggis er orðið.“

      Forgangsröðunin hjá þessum meirihluta… Hvað með að stórbæta öryggi barna í borginni og óvarinna vegfarenda almennt? Hvað með að stórbæta almenningssamgöngur og gefa fleiri valmöguleika en bara bílinn og gefa börnum frítt í strætó? Nei, bíddu, það var víst tekið af borðinu í sumar. Það má víst ekki snerta fjölskyldubílinn. Örugglega ekki einu sinni setja hraðatakmarkanir umfram þær 30 sem þegar eru. Það má auðvitað ekkert þrengja að þessari háheilögu bílaumferð íhaldsins, því þau vinna fyrir einkabílalobbíið, bílaumboðin og olíufélögin. Þessi meirihluti er svo mikil tímaskekkja.

    Leave A Reply