Wäre es nicht besser gewesen, nur eine maximale Auslastung von 5.000.000 ISK zu haben? wo die Anzahl der Monate keine Rolle spielt?

    Ich denke, es gibt viele Menschen, die 500.000 ISK nicht erreichen. pro Jahr, obwohl sie zusätzlich 4 % + 2 % haben.

    https://www.visir.is/g/20262947741d/nu-haegt-ad-saekja-um-ad-radstafa-sereignarsparnadi-a-husnaedislan

    Von NCR44444

    Share.

    6 Kommentare

    1. Only-Risk6088 on

      Þú þarft sirka 700 þúsund á mánuði til að ná fullri nýtingu, ath að 500k þak var sett 2014. Þetta hefur verið frekar að gagnast tekjuhærra fólki. Lágmarkslaun nýta því miður ekki almenna úrræðið. Þannig ég er algjörlega sammála op

    2. bibbalicious on

      Hver ætli séu rökin fyrir þvi að hafa hámarks tímalengd á þessu úrræði, 10 ár.

    3. Melodic-Network4374 on

      Smá útúrdúr, en þessi viðleitni að troða öllu inn á island.is er farin að pirra mig. Sú síða var mikil bót þegar hún kom, og gerði suma hluti auðvelda rafrænt sem áður voru það ekki. En þetta staðlaða form passar bara ekki fyrir allt.

      Skatturinn er nú þegar með mjög góða þjónustusíðu og þetta hefði betur farið þangað. Á island.is forminu fékk ég að velja úr þremur lánum með númer sem ég kannast ekkert við – ekkert þeirra stemmir við lánsnúmerið á húsnæðisláninu. Ef þetta væri á síðunni hjá skattinum hefðu pottþétt verið upplýsingar um eftirstöður á þessum lánum og þá myndi ég vita hvaða lán það eru. En þetta „einfalda“ form á island.is leyfir ekki svoleiðis því það passar ekki við staðlaða stílinn.

      Þetta er reyndar langt í frá versta dæmið. Ég þurfti að skrá mig atvinnulausan fyrr á árinu, fyrsta skiptið í mörg ár. Það var algjör hryllingur. Seinast þegar ég gerði þetta þá var VMST með eigin síðu fyrir þetta sem virkaði alveg ágætlega. Nú eru þetta allt þessi stöðluðu island.is form, og þau spyrja spurninga sem VMST er þegar með svörin við og sem er vesen að grafa upp. Hvaða ár og í hvaða mánuði útskrifaðist ég úr þessum skóla sem ég var í fyrir 20+ árum síðan? Sennilega sama ár og mánuður og ég setti inn seinast, enda á ég ekki tímavél. Það tók svona 10x meiri tíma að fara í gegnum ferlið í dag og það var allt óþarfa vesen.

      Mig hryllir við tilhugsuninni að rafrænu skattframtalsskilin, sem skatturinn á mikið hrós skilið fyrir, verði flutt í form á island.is.

    Leave A Reply