Share.

    11 Kommentare

    1. Er ég að missa af einhverju. Er þessi að bjóða öllum að komast í gegnum greiðslumat.

      Einnig vill ekki skatturinn ekki leyfa mér að nota viðbótarlífeyrið mitt til að höggva af láninu mínu.

      Þannig hvað er þessi gæji að tala um?

    2. llamakitten on

      Hann er að horfa á allar þessar breytingar í tómarúmi. Hann er ekki að líta til þess að hér hefur orðið gífurleg fólksfjölgun. Þar að auki erum við alls ekki að byggja nógu margar íbúðir.

    3. >Vert er þó að taka fram að samkvæmt greiningu Landsbankans frá því í fyrra hefur fasteignaverð hækkað hraðar en laun frá aldamótum og raunvirði íbúðaverðs hefur nánast þrefaldast á þessum tíma.

      Hahaha, blaðamaðurinn sjálfur er með þetta á hreinu.

    4. Hey, einfalt að kaupa íbúðina en ekki endilega einfalt að halda í hana án þess að vera með baklandið!

    5. Only-Risk6088 on

      Fyrir tekjulægri einstaklinga eru hlutdeildarlán eini sénsinn á markaðinn. Það var ekki í boði fyrir fólkið á lægstu laununum og var þá fast á leigumarkaði. Það segir sig sjálft að það gengur illa að spara þegar þú ert á leigumarkaði og með litlar tekjur.

      Séreign fyrir fyrstu kaupendur getur verið 5 milljónir ef fólk sparar í 10 ár, þú þarft þá að vera með að meðaltali 700k á mánuði til að fullnýta heimildina. En fyrir ungt par sem er með ágætar tekjur þá er 5-10 ára sparnaður + séreign í mörgum tilfellum meira en nóg til að komast inn á markaðinn.

      Ég ætla ekki að fullyrða að það sé auðveldara núna en áður. En það er verið að styðja við fyrstu kaupendur og búa til hvata. Að hafa ekki trú á því að geta keypt fasteign er að draga mjög mikið úr ungu fólki, sem getur þá fallið í þá gildru að eyða of miklu. Það að hafa enga trú á því að maður geti keypt fasteign er stór hættulegt.

      Ég bjó til áætlun fyrir skyldmenni fyrir sirka 3 árum um sparnað og það er allt að koma. Planið var að spara 150 þúsund á mánuði og með því. Var planið að komast upp í 10 milljónir eigið fé á 5 árum. Hún átti þá rúma milljón fyrir. Svo að nýta séreign ofan á þetta. Þá 2,5 milljónir og kaupa sér íbúð með því. Nú hefur sparnaðurinn verið umfram 150 þúsund á mánuði allan tíman og smá ávöxtun á bankareikninginn. Langt á undan áætlun er hún farin að skoða fasteignir. Hún er á leigumarkaði og í 2x vinnum. Þetta er ekki auðvelt en 3 ár er mjög stuttur tími.

    6. SalamanderGold9009 on

      Ég er 40+ ára einstætt foreldri og var að kaupa mína fyrstu íbúð í vikunni. Ég þurfti að kaupa íbúð sem er ekki á Reykjavíkur svæðinu því það eina sem var í boði í bænum var ekki nógu stórt fyrir mig og barnið. Ég er iðnaðarmaður með góðar tekjur en hefði aldrei getað þetta án þess að hafa fengið hlutdeildarlán og hjálp frá fjölskyldu og vinum. Að segja að þetta sé auðveldara núna en þegar að pabbi gamli, sem er líka iðnaðarmaður, keypti íbúð í Þingholtunum án hjálpar fyrir 20 ára aldur er bara rugl. Eins og ég sé þetta þarf að brjóta niður fasteignamarkaðinn og byrja uppá nýtt á öðrum og betri forsendum.

    7. No_Information1234 on

      kjaftæði. Það þarf að komast í gegnum greiðslumat og svo er hann að tala um ógeðslega hátt lán. Það erekkert smá að þurfa að geta borgað af þessu

    Leave A Reply