Share.

    4 Kommentare

    1. “Ég er búinn að vera í launalausu leyfi frá Landspítalanum í rétt rúma tvo mánuði og búinn að vera með smá samviskubit yfir því að hafa óskað eftir þessu leyfi og fengið það vegna þess að maður skilur þá eftir vinnufélagana með þau krefjandi verkefni sem þar eru.”

      Mér finnst mjög einkennilegt að viðurkenna samviskubit en á sama tíma halda því fram að það sé engin leið til að sjá sparnað eða neitt annað heldur persónulega aðför gegn honum sjálfum í þessari uppsögn. Veit samviskan hans ekki bara upp á sig sökina og hann sjálfur er í bullandi afneitun með það?

    2. Það eru tveir „stjörnulæknar” á Íslandi, þ.e. þeir sem virðast vera með blaðamenn á speeddial á símanum sínum og egóið lengra en ferilskráin.

      Það að þeir séu báðir rannsakaðir fyrir grafalvarleg brot í starfi ætti að þurfa rannsókn út af fyrir sig.

      Siðblinda er eitthvað sem bara læknar geta greint, en það er erfitt að greina sig sjálfan*.

      *fyrir utan James H. Fallon

    3. Individual_Piano5054 on

      Hvert er íslenska orðið yfir „entitled“?
      Get bara ekki vorkennt þessum gaur, nei takk.

    4. Er hann ekki bara sáttur með að losna við þessi *lang*-erfiðustu tilfelli sem spítalinn fær, sem læknarnir þar fá allt of lítið greitt fyrir að sinna (enda fylgir miklu minna vesen og meiri arðsemi af léttari tilfellunum sem koma á einkareknu stofuna, þar sem erfiðari tilfellunum þaðan er ítrekað offloadað yfir á spítalann) – einkum í ljósi þess að læknirinn fær engar þakkir fyrir störf sín þar, eins og framkoman og lág laun sýna?

      Ég þarf að hlusta á þetta viðtal, hefur einhver hérna gert það og getur sagt mér hvort hann sé að þessu vegna þess að hann saknar í raun þessarar 33% vinnu, sem hann tók sér reyndar launalaust leyfi frá?

    Leave A Reply