Share.

    7 Kommentare

    1. Frekar upplýsandi um hvað Icelandair hefur treyst um of á sveigjanleika starfsfólks umfram launaða skyldu þess.

      Og fer svo í æfingar með þetta Möltu dæmi sem ógna afkomu þessara starfsmanna sem að voru sveigjanlegir fyrir fyrirtækið og þurrkar út vilja þeirra til að sýna sveigjanleika.

      Lítur einfaldlega út eins og Icelandair hafi byggt á sandi og eru að grafa undan sér líka.

    2. Þetta segir manni a.m.k. eitt: ekki bóka flug með Icelandair, ferðist með öðrum

    3. Ungrateful-Ninja on

      Gengur upp að reka flugfélag á Íslandi yfirhöfuð?
      Samkeppnin eru erlend flugfélög með miklu lægri launa- og rekstrarkostnað. Er einhver sviðsmynd þar sem þetta gengur upp og Icelandair er áreiðanlegt flugfélag sem skilar ekki tapi?

    4. I wish that I could fly
      Into the sky
      So very high
      Just like a dragonfly

      I’d fly above the trees
      Over the seas in all degrees
      To anywhere I please, oh

      I want to get away
      I want to fly away
      Yeah, yeah, yeah

    5. Ég er almennt ekki meðfallinn ríkisreknum fyrirtækjum en eitthvað þarf að breytast varðandi rekstur flugfélaga hér á landi.

      Við erum á eyju 1.000 km frá meginlandi Evrópu, flugferðir er eina ákjósanlega leiðin til að ferðast af þessu skeri.

      Áræðanlegar flugferðir til helstu áfangastaða á viðráðanlegu verði er ekki valfrjáls lúxus heldur algjör þörf, alþjóðleg flug eru innviðir hér, ekki einungis neysluvara.

      Við erum nú hættulega háð einu íslensku alþjóðaflugfélagi sem er að hóta að færa reksturinn, þessi Möltu hugsun breytti öllu.

      Íslenska ríkið ætti að taka yfir stjórnandi hlut af Icelandair (sð minnsta kosti 50.1%) til dæmis eins og Finnair.

      Ríkið hefur nú megsr þurft að stíga inn fjárhagslega þrisvar vegna Icelsndair/Flugleiða. Árið 1975, 1980 og í Covid 2020. Nú stefnum við á fjórða skiptið.

      Það er kominn tími til að hltta þessari vitleysu.

    6. Stærsta vandamál Icelandair er staðsett í Fílabeinsturninum í Hafnafirði. Það eru u.þ.b. 40 flugvélar skráðar á fyrirtækið, sem er ekki há tala í þessum bransa.

      Fjöldi starfsmanna sem tekur ekki beinan þátt í Flugrekstrinum, heldur er í stuðningshlutverkum, svo sem þjálfunardeild, markaðsdeild, verkfræðideild og mannauðsdeild, er gífurlega hár miðað við fjölda flugvéla. Fjöldi millistjórnenda sem ráða engu og bera enga ábyrgð blæs svo rekstarkostnað enn meira út.

      Ákvörðunartaka er trekk í trekk röng, og góð ráð frá reynslumiklu fólki hunsað, svo sem val á hreyflum fyrir B737MAX vélar, sem brennir hrikalega mikið af olíu, og coke-ar mikið í exhausti, og hafa fuel nozzle-ur sem eru 3d titanium prentaðar ítrekað verið svo coke-aðar, m.a. vegna sands sem var notaður á Keflavíkurflugvelli, að það er sennilega búið að þurfa skipta um 19 stykki per hreyfil á öllum flotanum. Kostnaður við að skipta út setti á einum hreyfli er í kringum 100k USD í parta, og svo ekki sé minnst á að vélin skapar heldur ekki tekjur í einhverja daga meðan aðgerð á sér stað.

      Annað gott dæmi eru sætin sem voru valin í nýju Airbus vélar Icelandair, flugvirki með 40 ára reynslu, sem hefur komið að vali allra sæti áður, mældi gegn þessum sætum, var hlustað? Nei. Það var nýleg frétt sem var einmitt að tala um þessi vandræði.

      Í mörg ár eftir Covid, hafa B757 flugstjórar og flugmenn, fengið full laun greitt, meðan þeir eru kannski að fljúga 4 sinnum í mánuði, og margir enn sjaldnar. Þetta skapar bæði hættu því flugmenn fljúga svo sjaldan og eru því ekki jafn beittir, og mikið tap að greiða mörgum flugmönnum full laun þegar þeir skila litlu vinnuframlagi, því B757 eru svo óhagkvæmar.

      Stærsta vandamál Icelandair er yfirstjórn, og ákvarðanir þeirra.

    Leave A Reply