Ich finde es wirklich ironisch, dass ich nicht möchte, dass das Kind diese Bildung um der Religion willen erhält, anstatt sie zu nutzen "Wissenschaft"Argument als Stütze.

    https://www.visir.is/g/20262887212d/alraemdur-fadir-stigur-fram

    Von Vigdis1986

    Share.

    20 Kommentare

    1. Sem algjörlega trúlaus einstaklingur finnst mér mjög tæpt enn kannski skiljanlegt að taka barn úr skóla af trúarlegum ástæðum. Enn að skrifa grein um það og reyna að rökstyðja það er vægast sagt mjög skrítið. Enn þeir sem eru mjög trúaðir sjá sína trú alltaf öðruvísi og líta á hana sem einhvern sannleik sem sé hægt að rökstyðja.

    2. ImportantParsnip851 on

      Ég vona innilega að þessi foreldri hætti á samfélagsmiðlum því það er frekar augljóst að þetta er einhverskonar bandarískur áróður sem tengist okkur ekkert. Það væri rosalega gott ef foreldrar einblíni meira á vandamál í nærumhverfi í stað þess að búa til vandamál sem eru ekki til staðar. Ég vona líka barnsins vegna að ákvörðun þessa foreldris að birtast í fréttunum hafi ekki skaðleg félagsleg áhrif á barnið.

    3. Bara regular, run-of-the-mill hálfviti.

      Kristinn öfgamaður segir kynfræðslu stangast á við trú sína.

      Í jesú nafni, Ramen.

    4. SnowballUnity on

      Hefði svosem alveg skilið það að vilja sleppa þessu námi áður en ég las þessa grein hans.

      Skil ekki þessa hræðslu við að börn fái að sjá önnur sjónarmið en viðgangast á heimilinu. Finnst hann koma fram eins og lítill hræddur kall í þessari grein sinni.

    5. Ég vildi óska að ég gæti séð viðbrögð þessa manns ef þetta fjallaði um múslimskt fólk sem vill að barnið sitt lærði kóraninn í stað kynfræðslu í skólanum.

    6. Morvenn-Vahl on

      Æji, mér finnst svona trúar lið svo endalaust steikt. Biblían talar svo til helst lítið um kynhneigð eða kynvitun og þeir textar sem kristið fólk eru margir fræðingar á að hafa verið misskildir. Svona fyrir utan það að þetta lið brýtur á öllum öðrum boðorðum en um leið og það sér færslu um hinsegin fólk þá þarf að taka það alvarlega allt í einu.

      TL;DR: þetta lið er klikk.

    7. Að velja sér svona vindmyllu til að berjast við. Skárra að barnið fái fræðslu um þetta í skólanum heldur en frá vinum og netinu. Í dag er ekki hægt að ala upp barn sem fær ekki vitneskju um þessa hluti. Skárra að það sé skólinn og þá ræða við barnið í kjölfarið ef maður hefur aðrar lífsskoðanir.

      Ef eitthvað gerir barn forvitið að þá er það þetta, banna fræðslu um hluti sem allir aðrir fá í skólanum.

      Svo hefur hann bara ekki lesið sér nóg til, það eru svo sannarlega til vísindarök með því að við séum alls konar.

    8. Þá lærir barnið ekki að takast á við þessi málefni, og hugsanlegar tilfinningar sínar gagnvart þeim af því faðir þess neitaði því um þá hæfileika.

      Það þarf ekkert að kosta barnið í framtíðinni – en það gæti gert það. Hugsanlega leitar það sér ekki hjálpar eftir mistnotkun af því það þekkir hana ekki. Hugsanlega misnotar það óvart aðra manneskju af því það þekkir ekki samykki. Hugsanlega elst það upp í sjálfshatri af því það er samkynhneigt en faðir þess neyðir það til að bæla niður þær tilfinningar þangað til þær brjótast út. Hugsanlega gerist ekkert af því þessi þekking kom aldrei til nota.

      En áður en að þessi smátappi ákvað að neyta barninu sínu um þekkingu sem hræðir dularfulla ímyndunarvininn hans þá var þessi málsgrein að ofan einungis: „Hugsanlega gerist ekkert af því þessi þekking kom aldrei til nota.“

      Vonum bara allra vegna að þetta skipti engu – en fáranlega óþörf áhætta að leggja á aðra af ástæðum sem eru torskyljanlegar flestum öðrum en þeim sem eru fyrirfram sammála. Pínu ósanngjarnt fyrir barnið, en foreldrar fá víst að taka ósanngjarnar ákvarðanir og neyta börnum sínum um þekkingu og þjónustu.

    9. Sko, ég veit þetta er ekki beint um kynfræðslu almennt, en því tengt ætla ég bara að segja það upphátt. Þið megið downvota. Ef foreldrar vilja ekki að börnin sín fái kynfræðslu í skólum, þá finnst mér það vera pínu *red flag*. Kynfræðsla snýst mikið um að börn læri að setja mörk og þekki muninn á því hvað er rétt og rangt. Ef foreldrar vilja ekki að börnin læri það, þá finnst mér það pínu duló. Ég er ekki að ásaka, ég set bara spurningamerki. Ég geri mér alveg grein fyrir því að þessi tiltekni faðir er sýktur af menningarstríðinu sem umvefur Facebook og aðra samfélagsmiðla, og hefur verið mataður af alls konar bulli og samsæriskenningum, svo ég er ekkert endilega að tala um hann sérstaklega.

      En versta útgáfan af þessu er einfaldlega sú að foreldrar vilji ekki kynfræðslu i skólum vegna þess að börnin gætu þá farið að setja þeim mörk. Að foreldrar vilji ekki að börnin sin læri að setja mörk, vegna þess að foreldrarnir eru að gera hluti sem þau eiga ekki að vera gera. Og fólkið sem að tekur þátt í orðræðunni og trúir því einlægt að það sé að vernda börnin sín, hjálpar ofbeldisfólkinu… En ég hef bara séð svo margt undanfarin ár að það er fátt sem kemur mér á óvart lengur.

    10. >Ef kynin eru óteljandi er marklaust að tala um kyn yfir höfuð

      Ef guð er allstaðar, sýndu mér hann. Annars er marklaust að tala um kristna trú.

    11. Snakatemjari on

      Ég vorkenni börnunum hans, ekki bara því þeim er neitað um kynfræðslu (sem er grafalvarlegt mál), heldur opinberar pabbi þeirra heimsku sína fyrir allra augum

    12. “Ef kynin eru óteljandi er marklaust að tala um kyn yfir höfuð.”

      Alright. Það er semsagt marklaust að tala um hitastig. Hverskonar hálfviti er þetta eiginlega?

    13. CerberusMulti on

      Þessum greinilega vantaði athygli, litaðu mig hissa að svona persóna vili athygli. Ætli hann verði ekki í einhverju af þessum fáránlegu hlaðvörpum bráðlega og svo að auglýsa sitt eigið námskeið.

    14. Hversu oft hefur maður séð miðaldra fyrrum krimma sem í staðin fyrir að gera upp það sem þau hafa gert rangt í gegnum tíðina og sýna smá auðmýkt í kjölfarið? Það er næstum því alltaf farið beint í næsta jesúhopparasöfnuð, gripið í biblíu og fundinn einhver minnihlutahópur til að láta sér líða eins og það sé möguleika einhver þarna úti til að líta niður á.

      Var ekki til neitt primetime slot á Ómega eða gott sæti í flokk fólksins fyrir hann?

    15. Pain_adjacent_Ice on

      Alræmdur? Hver er þetta (retórísk spurning)?

      Það sem þessi skemmdi maður hefur miklað mikilvægi sitt í eigin hugarheimi er eiginlega magnað, en að sama skapi fyrirsjáanlegt… Hann er að skemma svo mikið fyrir börnum sínum – og mögulega öllum sem þau kynnast á lífsleiðinni – með þessari illa ígrunduðu háttsemi sinni.

      Svona fólk á ekki að eiga börn.

    Leave A Reply