
Tómas setzte eine Reihe von Ereignissen in Gang, die „direkt und vorhersehbar zum Tod des Patienten führten“ – RÚV.is
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-21-tomas-setti-af-stad-atburdaras-sem-leiddi-med-beinum-og-fyrirsjaanlegum-haetti-til-thess-ad-sjuklingurinn-lest-476135
Von birkir
5 Kommentare
>Í dómnum segir að Tómas hafi sýnt af sér stórfellt gáleysi í starfi, brotið lög um reglur um sjúkraskrár og farið alvarlega gegn þágildandi læknalögum. Hann hafi einnig farið fram hjá yfirmönnum sínum vísvitandi.
>
>„Hann tók þátt í ferlinu af faglegum hvata og tók sjálfur þátt í tilraunaaðgerðinni. Þessi háttsemi setti af stað atburðarás sem leiddi með beinum og fyrirsjáanlegum hætti til þess að sjúklingurinn lést,“ segir í dómnum.
>Það taldist einnig til ámælisverðrar háttsemi að Tómas beitti sér fyrir því að Andemariam kæmi fram á málþingi Háskóla Íslands árið 2012 til að tryggja jákvæða fjölmiðlaumfjöllun. Þetta hafi verið gert þrátt fyrir að Andemariam hafi skömmu áður verið mjög veikur, hóstað blóði og þurft bráðainngrip í Svíþjóð.
>
>„Tómas notaði þannig dauðvona sjúkling, sem var í viðkvæmri stöðu og algerlega hóður honum um eftirmeðferð, í auglýsingaskyni,“ segir í niðurstöðu dómsins.
[deleted]
Það voru 774 milljónir í skaðabætur í Guðmundar og Geirfinnsmálinu sem setur ákveðið viðmið.
Ætli þetta fari yfir milljarðinn?
Þessi grein er svakaleg. Fölsun tilvísunarinnar grefur alveg undan allri mögulegri málsvörn. Að láta sjúklinginn koma fram á málþingi hljómar bara eins og eitthvað sem illmenni í teiknimynd myndi gera.
Tómas er án efa mjög fór skurðlæknir.
En þetta mál rifjar upp hjarta stungu málið fyrir nokkrum árum þarsem hann fær hjúkku til að taka upp myndband af sér í miðri aðgerð. Maður fékk ónotatilfinning þá, ekki útaf efni myndbandsins heldur því það leit meira út eins og tilraun til að upphefja sjálfan sig og þetta soldið staðfestir það.
EDIT: Mér er líklega að misminnast að það hafi verið hjúkka sem tók þetta upp, þetta gerðist fyrir 12 ár síðan en það skiptir ekki máli hér og hvernig komst sími inni skurðstofu sem á að vera dauðhreinsuð, liklega mest skítugasta tæki sem þú notar dagsdaglega?
EDIT 2: sjá comment frá u/Gradugurleigusali hvað varðar síma, því ég veit ekkert um þetta.