Share.

4 Kommentare

  1. > Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR, segir að stór hluti vændismála falli undir mansal sem feli í sér grafalvarleg mannréttindabrot. Því sé afar aðkallandi að koma í veg fyrir áframhaldandi eða versnandi þróun.
    >
    >„Eftir að hafa horft á þáttinn fékk maður auðvitað þá tilfinningu, þá sýn og þær upplýsingar að við værum á margan hátt búin að missa tökin á vændi og mansali í kynferðislegum tilgangi,“ segir Svala og bætir við að umfjöllunin hafi eflaust slegið marga.
    >
    > „Ég held að það sé mikilvægt að átta sig á því hversu stór hluti af því sem við köllum vændi er mansal, sem eru grafalvarleg mannréttindabrot. Þannig að það þarf að gefa þessu meiri athygli og meiri gaum,“ segir Svala.
    >
    > „Þetta er alls ekki skýrt lengur og í dag erum við búin að gera okkur ljóst að margir þeir sem selja vændi eru alls ekki að því af fúsum og frjálsum vilja heldur eru þetta oft og tíðum þolendur mansals. Svo er þetta hópur í viðkvæmri stöðu og í áhættuaðstæðum þar sem auðvelt er að beita fólk ofbeldi, nauðung eða þvingun þannig að vændi getur mjög fljótlega, hratt og örugglega orðið að mansali.“

    Það sem mig langar til þess að spyrja kaupendur vændis á Íslandi: hvernig réttlætið þið þetta fyrir sjálfum ykkur (eða öðrum)? Þið eruð á Íslandi og þið getið ekki komist hjá því að vita hver staðan er hér í þessum málum; þið vitið hver staða kvenna er sem þetta þurfa að þola. Eða hvað? Haldið þið að mansal sé ekki til í myndinni að svo miklu leyti sem þið eruð þátttakendur á þessum markaði?

  2. allsbernafnmedrettu on

    Ok það er semsagt enhver erfið löggjöf í bígerð varðandi þetta mál. Batteríið á fullu að reyna framleiða samþykki.

    OP kanski hluti af þessu batteríi?

  3. Mætti taka kaupendur og kæra fyrir nauðgun í málum þar sem að mansal er raunin?

    Ef að manneskjan getur ekki gefið samþykki af fúsum og frjálsum vilja þá er þetta ekkert annað en nauðgun að mínum dómi.

    Og nafngreina þá sem dæmd eru fyrir að kaupa vændi, þetta leynimakk sem að dómstólar fremja með nafnleynd á kaupendur vændis er fáránlegt.

  4. StefanOrvarSigmundss on

    Þessi málaflokkur er svo einstakur. Endalausar fullyrðingar en lítið af gögnum. Menn eru búnir að ákveða að vændi sé mansal og því þarf ekki að skoða málaflokkinn frekar, bara fara í lagabreytingar. Stígamót og Bjarkarhlíð fá verstu tilfellin til sín og gera ráð fyrir að þau séu öll eins. Samtök kynlífsverkafólks hafa sínar skoðanir en það er bara talað niður til þeirra.

Leave A Reply