Það verður að stöðva alla þessa innflytjendur sem nýta sér neyð kvenna og henda þeim úr la…… Æjj fo%#, þetta eru víst samlandar mínir. My bad, ekkert að sjá hér, carry on.
Hvar í andsk er íslenski fáninn?
_MGE_ on
Ótrúlega vel unnin þáttur af Kveik, þáttastjórnandi á mikið lof skilið fyrir þetta viðtal við íslensku konuna, sem hlýtur að hafa verið mjög þungt. Sómasamlega unnið með þetta viðbjóðslega málefni.
birkir on
Kynferðisbrotin eru óteljandi. 80 vændiskaupendur á þremur sólarhringum til einnar konu. Næsta fer ekki út úr húsi vikum saman nema til þess að fara út með rusl á meðan karlarnir hittast á göngunum þegar einn kaupandi kemur inn og mætir öðrum á leiðinni út. Ein þeirra virtist segja frá því að hafa verið barn þegar stjúppabbi hennar kom með hana síðast og seldi aðgang að henni með þessum hætti – aðgang að henni og aðgang að móður hennar (kærustu stjúppabbans). Þetta er *ógeðslegt*.
Andmælin gegn vændisstarfsemi á Íslandi er ekki vegna þess að „fólk úr fílabeinsturninum telji þetta vera niðrandi fyrir konur“. Við vitum samfélagsskaðann, sá skaði sem þessi undirheimastarfsemi veldur er áþreifanlegur, raunverulegur – *ef þú bara nærð að sjá vændisþolendur sem hafa þurft að þola mansal sem manneskjur*.
Það er fullkomlega eðlilegt að þeir sem brjóta kynferðislega á fórnarlömbum mansals beri sína ábyrgð á þeim brotum. Ekki síður en fólkið sem hneppir þau í ánauð með hótunum. Vændiskaupendur hér sem herja á konur sem þeir geta ekki gefið sér annað en að séu í ánauð eru forsenda þess að mansal á fórnarlömbum til Íslands viðgengst. Eftirspurn þeirra veldur því að þessi mansalsbrot gerast. Ítrekað.
Það er lágmark að birta nöfn kaupenda og senda bréf heim til þeirra með sektarsátt eða dómsniðurstöðunni eftir því hvort á við.
Woodpecker-Visible on
Núna vantar bara grænu kaffihúsin. Amsterdam norðursins.
arnaaar on
Einholt Apartments – All essential services right on your doorstep.
Dagur on
Þessi sænska leið virkar ekki. Hún heldur vændi í undirheimunum og gerir ekkert til að vernda þau sem stunda það.
Þessi þáttur er gífurlega einhliða. Hann er svo ófagmannlega uppsettur og vilhallur fólkinu sem lítur niður á starfsemi kynlífsverkafólks að mig nánast grunar að hann sé keyptur af lögreglunni.
Í öðru lagi er tekið viðtal við konu sem lenti í hrottalegu ofbeldi sem á aldrei að líðast. Það sem þessi kona lenti í er hræðilegt og hún á alla mína samúð fyrir það sem var gert við hana. Að setja þetta svona upp er samt óheiðarlegt og gert til að mála alla vændiskaupendur sem ofbeldismenn og allt kynlífsverkafólk sem fórnarlömb. Það sem þessi kona lenti í er að miklu leiti því fólki sem vill banna vændi að kenna. Það eru þau sem keyra starfsemina í undirheimana þar sem ofbeldið dafnar hvað best. Það eru þau sem vilja koma í veg fyrir að kynlífsverkafólk geti stundað vændi á öruggum stöðum þar sem gæti verið gæsla fyrir seljendurna, leiðsögn fyrir þá sem eru nýjir í stéttinni og að fólk sem vill eða þarf að stunda vændi geti haft greitt aðgengi að stéttinni án þess að melludólgar þurfi að koma við sögu. Núna eru þeir sem geta veitt leiðsögn fyrir þá sem eru nýir eðli málsins samkvæmt þeir sem eru tilbúnir að brjóta lögin.
Í þriðja lagi er Fólkið í fílabeinsturninum gjörsamlega vitfirrt þegar það er spurt hver þeirra lausn er. Þau vilja smána kaupendur með nafnbirtingum og sparka vændiskonunum úr landi. Það virkar ekki að banna dóp, það virkar ekki að banna áfengi, það virkar ekki að banna fjárhættuspil og það virkar ekki að banna vændi. Það eina sem þessi bann og smánarstefna áorkar er að keyra þetta dýpra í undirheimana þar sem ofbeldið verður [ennþá meira](https://www.youtube.com/watch?v=sVxJ016xb4Q&time_continue=0&source_ve_path=NzY3NTg&embeds_referring_euri=https%3A%2F%2Fwww.google.com%2F).
Í fjórða lagi er engin siðferðislega réttlætanleg neysla undir auðvaldsstefnunni. Það gildir jafnt um að kaupa þjónustu kynlífsverkafólks og að kaupa þjónustu hvers annars sem neyðist til að vinna eða deyja, sem eru flestir á þessari jörð.
Allt við þennan þátt er til skammar fyrir kveik sem hefði átt að gera smá rannsóknarvinnu áður en þeir settu þetta í sýningu. Ef það er einhver áhugi á að koma í veg fyrir mansal þarf að ræða við kynlífsverkafólk. Það þarf að finna leiðir til að gera þetta löglegt Kynlífsverkafólk á að geta stofnað sitt eigið stéttarfélag þar sem það getur fengið vernd, fræðslu og aðstoð við að feta sig innan bransans. Allt sem þetta fólk leggur til mun bara auka við þjáningu og gera líf allra sem koma nálægt þessu verra.
Leave A Reply
Du musst angemeldet sein, um einen Kommentar abzugeben.
7 Kommentare

https://www.amnesty.org/en/latest/news/2016/05/amnesty-international-publishes-policy-and-research-on-protection-of-sex-workers-rights/
Þessi þáttur er gífurlega einhliða. Hann er svo ófagmannlega uppsettur og vilhallur fólkinu sem lítur niður á starfsemi kynlífsverkafólks að mig nánast grunar að hann sé keyptur af lögreglunni.
Til að byrja með er einungis rætt við lögregluna og það sem mætti líklega kalla fólk í fílabeinsturni sem telur allt vændi vera niðrandi fyrir seljandann og enginn myndi nokkurn tímann láta sér detta í hug að selja vændi án þess að neyðast til þess. Það er ekki rætt við kynlífsverkafólk sem sinnir þessari starfsemi af stolti án þess að neyðast til þess, það er varla ýjað að því að slíkt sé mögulegt. Samt hefur[ nýverið verið fjallað um þetta í heimildinni](https://heimildin.is/grein/26065/samstadan-a-milli-kynlifsverkafolks-eitt-thad-fallegasta-og-dyrmaetasta/). Það er ekki rætt við kaupendurna um afhverju þeir myndu vilja leita í vændi, það eru ekki bara ofbeldismenn sem stunda þetta. Kynlíf er náttúruleg þörf og margir sem geta ekki nálgast það nema með því að kaupa vændi en það eru líka til [hundruðir](https://www.vice.com/en/article/sex-workers-favourite-clients-margaret-corvid/) viðtala við kynlífsverkafólk þar sem það talar um viðskiptavini sína ef maður leitar að þeim ef maður skyldi vera forvitinn. En hér er bara talað við konur sem vinna hjá stöðum sem taka á móti konum sem hafa fengið neikvæða upplifun. [Þeirra upplifun gæti mótast af því að hitta bara þær konur sem hafa lent í ofbeldi tengdu vændinu](https://encrypted-tbn0.gstatic.com/images?q=tbn:ANd9GcSqJqSHMS5brWQjqrKocCXa6xWFYMWAEM7UkQ&s). Löggur eru löggur og vilja vera í lögguleik og góma þá sem þeir halda að séu bófar. Það er ástæða fyrir því að lögreglan er *ítrekað* sá aðili sem kynlífsverkafólk kvartar hvað mest yfir að hafi neikvæð áhrif á sig og líf sitt. [1](https://www.researchgate.net/publication/401917570_SEX_WORKERS_SPEAK_OUT_Policing_and_the_sex_industry) [2](https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S2667321522000105)