Das Opfer Snorri „JD“ Másson

    https://www.visir.is/g/20262872547d/snorri-mas-son-bregst-vid-ofsa-fenginni-samfelagsumraedu-lygaarodursherferd-af-halfu-politiskra-and-staedinga-

    Von CharlieDaymanCometh

    10 Kommentare

    1. monsteradeliciosa11 on

      Ég nenni ekki að lesa hvað hann hefur skrifað, hef ekki hugarorkuna fyrir það þessa vikuna.

      En ég mun kannski skemmta mér við það að fá erlenda vini til að reyna að segja ´Lygaáróðurs­her­ferð´

    2. Hvað í þessu máli réttlætir að þessi grein sé svona rosalega löngu?

    3. Morvenn-Vahl on

      Skulum byrja á því augljóslega: Snorri er á hraðri leið með að aðhyllast hugmyndarfræði fasismans ef hann gerir það ekki nú þegar.

      Hitt er svo að hann er augljóslega þaulþjálfaður í [DARVO](https://en.wikipedia.org/wiki/DARVO) en öll orðræða hans beinist að því að gera fórnarlömb hans að gerendum og að hann sé hið raunverulega fórnarlamb.

      Það að greinin vitnar í Hallgeir Jónsson sem rök fyrir orðum Snorra sýnir að það er stórhættulegt að vitna í fólk sem fólk þekkir ekki almennilega til. Hallgeir er er vel klikkaður og eyddi miklum tíma í að spúa hatri á spjalli Hinseginfólks áður en honum var hent út. Þetta er svona eins og að benda á Röhm sem sönnun fyrir því að nasistar hötuðu ekki homma. Bara galið.

      Að lokum: þá væri bara fínt ef hann myndi bara flytja í eitthvað af suður ríkjum Bandaríkjanna. Hann á vel heima þar.

    4. Johnny_bubblegum on

      Auðvitað er það Jakob Bjarnar sem tekur viðtalið og spyr engra spurninga…

      Og auðvitað er þetta allt undan rifjum pólitískra andstæðinga og raunverulegu fórnarlömbin eru Snorri og félagar.

      Og auðvitað eru allir alltaf að ljúga

      Og auðvitað er engu efnislega svarað heldur rugludallar á facebook fundnir til þess að sýna að þetta er algjörlega eðlileg gagnrýni.

      Og auðvitað er DEI komið í orðaforða Snorra.

      Þetta er copy paste af taktíkinni frá MAGA og Jakob Bjarnar er fox news fyrir miðflokkinn til að blása í hundaflauturnar.

      Þetta eru ógeðslegir menn.

    5. ChickenGirll on

      >„Ef út í það er farið virðast það reyndar ekki síst vera samkynhneigðir sem hafa tekið undir gagnrýni á fánana, sem gengisfellir væntanlega alveg fullyrðingar fólks um að þeir séu bara umburðarlyndisvottur eða óumdeilt sameiningartákn þess hóps.“

      Ég hef séð nákvæmlega tvo samkynhneigða einstaklinga sem hafa tekið undir þessa gagnrýni. Þeir heita Eldur Smári og Hallgeir Jónsson. Það að þeirra orð gengisfelli á einhvern hátt fullyrðingar allra hinna er eiginlega bara hlægilegt.

      Þú ert á Alþingi, Snorri, ekki spila þig svona vitlausan.

    Leave A Reply