
Es ist großartig, dass diese Verfolgungsjagd gestern gestoppt wurde, insbesondere in einer Gegend wie dieser, in der die Reise kaum gefährdet ist und außer den Autos offenbar keine Sachschäden entstehen.
Die Arbeitsweise, die in diesem Video zu sehen ist, ist noch etwas grob. Diese Motorradpolizisten, zweifellos voller Adrenalin von der Verfolgungsjagd, zerren eine Person buchstäblich mit ihren Händen über die Fahrertür (Grund unbekannt) und knallen sie mit voller Wucht gegen die Felsen. Zur gleichen Zeit richtet ihr Kollege einen Elektroschocker auf die Person. Es ist klar, dass hier viel Aufregung herrscht.
Ich weiß nicht, ob das eine akzeptierte Praxis ist, ob isländische Polizisten so große Amateure sind oder ob die Gesetzesbrecher einfach jede Behandlung rechtfertigen. Aber hier stimmt etwas nicht.
Und es wird wahrscheinlich nicht mehr viele Jahre dauern, bis dieselben Männer mit Schusswaffen durch die Straßen gehen. Kannst du es nicht noch ein bisschen versuchen?
https://v.redd.it/nucuelrpy4vg1
Von PM_UR_PLANNEDECONOMY
9 Kommentare
Sumt fólk er bara á móti því að lögreglan geri starf sitt.
Ég get ekki séð neitt að þessum vinnubrögðum tbh
Ég sé ekkert að þessu.
Flott að fara í löggu námskeið til Ameríku.
Vorkenni þessum gæja ekkert. Bara vel gert.
Einstaklingurinn hefur sýnt ekkert samstarf, hunsað stöðvunarskildu lögreglu og stefnt lífi eflaust tuga manna í hættu með aksturshætti sýnum. Þá vitum við í raun ekkert hvaða upplýsingar lögreglan hefur. Það getur verið að það sé búið að marg handtaka manninn vopnaðan. Því sé ég í raun lítið athugavert við þetta. Ef þetta væri hefðbundið umferðareftirlit þá mögulega en við vitum við jafnframt ekkert um forsögu málsins.
Það má vera að Lögreglan gangi of langt en það er þá undir dómstólum að ákveða en ekki okkar.
Allt er þetta bara fullkomlega eðlilegt. Lögreglan er ekki að elta fólk til að spjalla við það heldur til að stöðva það. Og þegar einhver er á flótta og gerir augljóslega allt til að komast undan handtöku, þá má alveg búast við því að það verði tekið fast á honum.
Stundum velti ég því bara fyrir mér hvað varð eiginlega um þennan hluta íslensks samfélags sem virðist meira upptekinn af því hvernig lögreglan framkvæmir hlutina heldur en af því af hverju hún er að gera það. Lögreglan á að framfylgja lögum. Það er bókstaflega grunnhlutverk hennar.
Manni verður eiginlega illt þegar maður sér hvað margir hugsa svona. Og það er nákvæmlega svona sem land verður smám saman að einhverri útþynntari útgáfu af Svíþjóð — allt of kurteis, allt of linlegt og allt of upptekið af því að móðga engan. Það er varla tilviljun að það séu svona margar kindur á þessari eyju.
>sérstaklega á svona svæði þar sem að er lítil hætta á ferðum
auðvelt að segja það eftirá, það er að vinna dálítið með þér hérna að hætturnar voru óþekktar lögregluþjónum á staðnum þá, en eru þekktar okkur sem horfum á þetta eftirá með replay og vitum hvernig fór
ég veit reyndar ekki af hverju þjónninn með rafbyssuna fór samt svona snemma af hinum grunaða, hinir virtust ekki vera komnir með 100% stjórn á honum og þurftu að fara extreme leið til þess að ná honum örugglega í járn, þar sem það var bílhurð á milli þeirra og a.m.k. tvær flóttaleiðir skyldi hann vilja hlaupa eins og hann hefur nú sýnt tilburði til
það er algengur misskilningur að lögreglan sé komin með stjórn á aðstæðum þegar hendur eru komnar á loft, eins og einstaklingurinn geti bara alls ekki ákveðið að halda áfram að berjast, og hafi jafnvel fleiri tæki til þess en bara bílinn (sem er í sjálfu sér drápstæki sem hann hefur ekki hikað við að nota og stofnað almenningi vísvitandi í hættu)
Nú er ég eins langt frá því að vera klappstýra fyrir lögregluna eða ríkisvaldið en þetta var listilega vel afgreitt PIT maneuver og nákvæmlega ekkert að því hvernig hann var tekinn niður. Þetta var bara fagmennska út í gegn ef þú áttar þig á því að þegar þú ert að handtaka einstakling sem hefur sett jafn marga í jafn mikla hættu og þessi maður gerði, og því sýnt af sér stórfellt dómgreindarleysi og hvatvísi þá þarf lögreglan að ganga út frá ví að hann geti hvenær sem er orðið hættulegur þeim líka – jafnvel eftir að hann sýnir hendurnar.
Þegar það er búið að sýna svona ævintýralega mikla ósamvinnu þá skiptir öllu máli að menn fari í járn eins hratt og auðið er. Það að setja hendurnar upp í loft gæti vel verið bara mjög tímabundið áður en mótspyrna hefst á ný. Bara verið að reyna að kaupa tíma. Þangað til handjárnin eru komin á þá verða menn að ganga út frá því að þeir sem eru að sjá um handtökuna séu í hættu.
Þarna var styðsta leiðin í járn klárlega yfir hurðina, þar sem einu öðru leiðirnar voru yfir húddið á lögreglubílnum í hina áttina(og lögregluþjónninn þeim megin var á rafbyssunni) eða aftur í gegn um bílinn og út um farþegahliðina, sem er klárlega ekki í boði eftir þá hegðun sem þessi maður sýndi af sér.
Að miða rafbyssu við þessar kringumstæður er líka bara ósköp eðlileg varúðarráðstöfun. Maðurinn gæti auðveldlega verið með hníf eða e-h álíka á sér og þangað til handjárnin eru komin á þarf lögreglan að vera með eitthvað mögulegt andsvar klárt ef það gerist.