Share.

    5 Kommentare

    1. RaymondBeaumont on

      Staðreyndin er að það er engin afsökun lengur fyrir að afneita þessu.

      Fólk sem afneitar ætti bara að hafa kjark að segja að þeim er skítsama þó barnabörnin þeirra þurfi að díla við þetta því barnabörnin geta bara étið það sem úti frýs.

      Hugsanlega gætu þau gert einhverja fyndni úr því að finna annað orð en „frýs“ þar sem það verður nú varla vandamál fyrr en barnabarnabarnabörnin eru komin.

    2. International-Lab944 on

      Mér finnst rosalega áhugavert hvernig klárt fólk eins og Frosti (og líka eins og Sigmundur Davíð o.fl.) getur fallið fyrir orðræðunni sem kemur mestmegnis frá “loddurum” í Bandaríkjunum. (Ég held allavega að Frosti sé klár og hann virkar með flotta reynslu úr atvinnulífinu). Kannski er þetta svipað og með gaurana sem ætla að afsanna afstæðiskenninguna, sem er minnst á í greininni á Vísir – hafa ofurtrú á sjálfum sér og ná ekki að spotta almennilega falsfréttir. Að því gefnu auðvitað að hann sé á villigötum, sem ég held nú að hann sé á. Þetta er dálítið annað en með Snorra Másson, sem virkar meira eins og framapotari – og bara nokkuð góður í því.

    3. Vandamálið með þessa bók er að hún ætti aldrei að hafa komið út. Það að henni sé veitt athygli er neikvætt þó að hún fái 0 stjörnur. Þetta er ekki eins og Snorri Másson eða SDG að tala útúr rassgatinu, þeir eru þingmenn og það hefur vægi.

      Þessi maður hefur nákvæmlega ekkert vægi og algjör óþarfi að básúna þessu út.

    4. One-Acanthisitta-210 on

      Þetta er snilldar ritdómur og alveg óþarfi að hefa svona vitleysingum eins og Frosta einhvern afslátt.

    Leave A Reply