Share.

    10 Kommentare

    1. Fólk er bara fyrir bílum.

      Bara ef við myndum breyta öllum gangstéttum í bílastæði (sem ekki eru nú þegar notuð sem bílastæði) og fjarlægja öll gönguljós þá væri Ísland að útópíu.

    2. Ég vil ekki deraila umræðuna en svo sé ég ótrúlega margt fólk í símanum undir stýri. Og heil kynslóð símafíkla er að vaxa upp og fá bílpróf.

    3. teacuptrooper on

      Mér finnst glatað að þetta sé sett svona fram en hann hefur samt eitthvað til síns máls. Ég vanda mig mjög þegar ég keyri og ber mikið tillit til vegfarenda. Ég fer einnig mikið út með 3ja ára dóttur mína, sem er að læra umferðarreglur.
      Vegfarendur hegða sér oft eins og þeir séu óstöðvandi og einir á ferð. Sérstaklega núna í myrkri og óupplýstum ljósaskiptum er virkilega erfitt að sjá fólk.

      Að því sögðu mega bílstjórar alveg endurhugsa allan sinn gang, ekki eðlilegt hvað fólk er sjálfhverft í umferðinni.

    4. Ég hef einmitt verið að hugsa þetta. Jú, fólk notar ekki almennt mikið af endurskinsmerkjum en ég hef tekið eftir því hversu ofboðslega léleg lýsing er á gangstéttum hér á höfuðborgarsvæðinu (lesist ekki bara Reykjavík). Allir ljósastaurar beina ljósinu á vegina en ekki gangstéttir, einmitt þar sem þeirra er kannski mest þörf. Bílar hafa ljós en fólk almennt ekki.

      Svo hef ég séð það að það eru hreinlega engir ljósastórar sem lýsa á gangbrautir svo fólk sjáist almennilega. Það er algjört myrkur yfir þeim.

      Þótt það sé gott að hafa endurskinsmerki þá er held ég enn betra að hafa ljós hjá þeim sem eru að labba yfir götuna á merktum svæðum. Þeir sjást líklega miklu frekar heldur en einhver smá glampi frá merkinu.

    5. GraceOfTheNorth on

      Ég veit ekkert um þetta mál EN ég veit að það er allt of mikið af dökkklæddu fólki með engin endurskinsmerki að vaða yfir götur í myrkrinu. Búin að sjá close-calls nokkrum sinnum á síðustu 2 vikum.

    6. Both_Bumblebee_7529 on

      Ég er sammála um að það sé mikilvægt að vera velsýnilegur gangandi vegfarandi. Ég er líka sammála þér að það vanti allt jafnvægi í þessa grein, t.d. er nefndur árekstur milli tveggja bíla í greininni sem endurskinsmerki hefði varla komið í veg fyrir. Svo. Gangandi vegfarendur, hugið að sýnileika og veljið öruggustu leiðina. Bílstjórar, sýnið rósemi, kveikið kannski á léttri jólatónlist og munið að horfa vel í kringum ykkur.

    7. Þetta er alltaf viðhorfið hjá löggunni því miður. Búið að vera svona áratugum saman.

      Alltaf er það eitthvað fólk sem er bara flækjast fyrir bílwtjórum og bílunum þeirra. Einsog gamla konan á Suðurlandsbraut sem varð fyrir bíl. Hún átti náttúrulega ekkert að vera á gangbrautinni. /K

    8. Ég held að hlutfallslega séu miklu fleiri gangandi vegfarendur illa merktir heldur en hlutfall glæfraaksturs

      Greinin segjir líka ekki ,,en” heldur ,,og”

    9. International-Lab944 on

      Æi, auðvitað er almennt ekki nægilega mikil áhersla á öryggi gangandi vegfarenda, en það er nú kannski ekki beint að sakast við lögregluna í þeim efnum. Ég sé ekki betur en það eina sem vakir fyrir honum sé að fækka umferðarslysum og alveg sérstaklega þessum alvarlegu slysum þegar ekið er á gangandi fólk. Lögreglan þarf einfaldlega að eiga við þann veruleika sem er á Íslandi og hann er sá að fólk ekur hratt og oft óvarlega, lýsingin er ekki góð, aðstæður eru ekki góðar og jú, fólk notar ekki endurskinsmerki. Og það að minna á allt þetta er líklegra til árangurs en að gera það ekki.

    Leave A Reply