Share.

    2 Kommentare

    1. >Í Kveik í kvöld verður meðal annars fjallað um að ári áður en grunur vaknaði um brot mannsins í ágúst, hefði foreldri stúlku á leikskólanum tilkynnt grunsemdir um að dóttir hennar hefði verið kynferðislega misnotuð.

      Þessi þáttur á eftir að rífa alla sem að málinu koma í spað…

    2. Það er vonandi að þetta leiði til vitundarvakningarinnar varðandi ábyrgð.

      „Þetta reddast” virkar ekki þegar líf og heilsa barna er annars vegar.

      Það er varla ár liðið frá því að starfsmaður stórskemmdi líf margra barna á öðrum leikskóla. Þau búa nú við ólæknandi líffærabilanir alla tíð.

      Þótt það sé vel hægt að benda á einstaka starfsmenn, þá er það umhverfið sem leyfir þeim þetta.

      Það eru litlar sem engar kröfur, það er lítið sem ekkert eftirlit, og þótt þessum lágmarkskröfum sé ekki fylgt eru afleiðingar engar.

      Tökum bara dæmið þar sem hátt í 20 börn sitja með ævilangan líkamlegan skaða og slóði vanhæfis og reglubrota teygir sig ár aftur í tímann.

      Ákærur? Núll. Afleiðingar? Engar, allir fá ennþá greitt fyrir sömu lélegu vinnubrögðin.

      Í þessu nýja máli er sem betur fer ákæra komin á borð. En það er ekki nóg. Þetta er augljóslega kerfislægur vandi þar sem pottur er brotinn á öllum stigum ábygðar sem myndar vítahring þar sem ábyrgðin hreinlega „núllast út” á óútskýranlegan máta.

      Ég get ekki sagt að sé spenntur yfir þessum þætti, alveg öfugt. En ég vona að við séum að fara læra einhverjar lexíur, loksins.

    Leave A Reply