Share.

    4 Kommentare

    1. AirbreathingDragon on

      >Moskítóflugur hafa fundist í hesthúsi á Suðurlandi. Frá þessu greinir Björn Hjaltason sem var fyrsti maðurinn til að finna moskítóflugur hér á landi í Kjós í Hvalfirði.

      >„EN – á mánudagskvöld síðastliðið barst mér mynd austan úr sveitum af flugu sem vissulega var moskító. Við Matti skondruðumst austur í morgunsárið daginn eftir til að kanna málið og ekki var um að villast. Í hesthúsi á bæ einum tóku á móti okkur nokkrar moskítóflugur og það sem meira er, að ekki var um sömu tegund að ræða og þá sem ég hef verið að finna undanfarið. Tegundin er af ættkvíslinni Culex en frekari greining liggur ekki fyrir.“

      >Fréttastofa ræddi við prófessor emeritus um málið sem sagðist telja það taka fluguna um tíu til fimmtíu ár að koma sér fyrir um land allt.

    2. Allir rólegir, um leið og golfstraumurinn slokknar verður of kalt hérna fyrir þær.

    3. dansk-reddit-er-lort on

      [> Þar tekur hann fram að frá því að moskítóflugan hafi fundist á Vesturlandi hafi moskítómanía gripið um sig meðal þjóðarinnar. Fólk hafi séð kvikindið í hverju horni og myndir hrúgist inn af allskonar skordýrum sem fólk telji að séu moskítóflugur, ***jafnvel fiðrildum***.](https://imgflip.com/i/ac04qw)

    4. Þetta er nú ekki neitt til að hafa áhyggjur af, þetta er inni í hesthúsi, og hefur ekkert um það að segja hvort moskítuflugur nái að dafna í íslenskri náttúru. Það að þetta sé önnur tegund segir okkur líka að þetta sé ekki birtingarmynd útbreiðslu einhverrar tegundar sem nær að lifa hér.

    Leave A Reply