Share.

    1 Kommentar

    1. > #### Draugur var á sveimi yfir Vesturbænum í gærkvöld íbúum til mikillar gleði. Draugurinn reyndist dróni í dulargervi en drónaflugmaður og íbúi hverfinu stóð á bak við gjörninginn í tilefni hrekkjavökunnar.
      >
      >Sigurður Helgason drónaflugmaður og eigandi drónaverslunarinnar DJI hengdi 3 metra langan draug á dróna sinn og flaug honum yfir Vesturbæinn í tilefni hrekkjavökunnar í gærkvöld til að gleðja íbúa.
      >
      > Hann segir hugmyndina hafa blundað í sér um árabil og í ár hafi hann ákveðið að láta verða af henni ásamt vinkonu sinni, drónaáhugakonunni Joana Braga, sem flaug dróna við hlið draugsins og tók hann upp.
      >
      > Uppátækið vakti mikla lukku hjá ungum sem öldnum og varð enginn skelkaður að sögn Sigurðar. Hann hyggst endurtaka leikinn ár hvert héðan í frá og ætlar þá að setja hátalara á drónann og spila hrollvekjandi hljóð á meðan vofan hringsólar yfir hverfinu.
      >
      > „Það mun ekki fara fram hjá neinum, það heyrist alveg úr hálfs kílómetra fjarlægð.“

      https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-11-02-draugur-a-sveimi-yfir-vesturbae-457899

    Leave A Reply