Þegar ég las [skýrsluna](https://rnsa.is/media/5308/tf-two-og-tf-fgc-flugumferdaratvik-vid-birk.pdf) tók ég eftir að í samskiptum við flugumferðarstjóra þann 6. október 2024 kom fram að þeir vissu af dróna sem hafði leyfi til að fljúga í 50 metra hæð á HR svæðinu og austur, og töldu drónann vera í kringum Borgarspítalann:
>Í brottfluginu eftir flugtak á flugbraut 13 lét flugmaður þyrlu EHR52 flugumferðarstjórann vita af dróna sem væri á flugi yfir Háskólanum í Reykjavík.
Flugumferðarstjórinn staðfesti að það væri vitað um dróna á flugi þar í lágum hæðum, en hann hafði talið drónan vera austar í Fossvoginum, nær Borgarspítala og hafði því gengið út frá því að drónaflugið hefði ekki áhrif á flug EHR52. Hafði flugmaður drónans hins vegar fengið leyfi fyrir fluginu í allt að 50 metra hæð (164 ft) í Fossvogsdalnum, yfir og austan við Háskólann í Reykjavík. Lét flugmaðurinn vita að hann væri kominn yfir drónann og það hefði ekki áhrif á flugið.
Þetta er áhugavert því þann 1. október 2025 var einmitt umræða hér frá notanda sem taldi sig hafa séð dróna akkúrat yfir Borgarspítalanum:
1 Kommentar

/r/Iceland – [*Sá mögulega stórann dróna nálægt Borgarspítala*](https://old.reddit.com/r/Iceland/comments/1nvjuta/s%C3%A1_m%C3%B6gulega_st%C3%B3rann_dr%C3%B3na_n%C3%A1l%C3%A6gt_borgarsp%C3%ADtala/)
hugsanlega var þetta bara rétt spottað hjá /u/Prestigious-Ruin7376 – eitthvað árlegt drónaverkefni í kúrs hjá HR þar sem flogið er í október?