> #### Á veggjum einangrunarklefa í fangelsinu á Hólmsheiði sjást ummerki eftir unga konu: tveir broskarlar sem teiknaðir hafa verið með blóðugum fingrum.
>
> Unga konan hefur dvalið margsinnis og svo vikum skiptir í þessum klefa í vor og haust, vegna þess að hún er metin hættuleg. Ekki öðrum – heldur sjálfri sér. Hún er rúmlega tvítug og hefur margítrekað skaðað sig, skorið, reynt að innbyrða hreinsiefni og verið metin í sjálfsvígshættu og mikilli vanlíðan.
>
> Myndavélaklefinn, eins og hann er kallaður, er einn þeirra einangrunarklefa sem fangaverðir grípa til þegar vista þarf fanga sem taldir eru hættulegir sjálfum sér eða öðrum. Klefinn er hrár, engir lausir hlutir, utan plastklædd dýna á gólfinu. Hefðbundin salernis- eða hreinlætisaðstaða er þar ekki. Þeir sem dvelja í klefanum þurfa að gera þarfir sínar standandi eða á hækjum sér í sérstakt salerni sem er í raun gat í gólfinu. Allt er þetta gert til þess að koma í veg fyrir að þeir sem í herberginu dvelja, skaði sig eða aðra.
>
> Í lofti klefans er svo myndavél, sem gengur allan sólarhringinn og gefur fangavörðum kleift að vakta herbergið öllum stundum.
—
> #### Þegar fangelsið á Hólmsheiði tók til starfa voru fjórir stálhringir boltaðir ofan í gólf klefans, sem annars er dúklagt. Þessir hringir gegndu því hlutverki að í þá væri hægt að festa ólar eða handjárn ef nauðsynlega teldist ástæða til að óla niður eða hefta fanga sem þar væru geymdir.
>
> #### Hringirnir hafa nú verið fjarlægðir, að kröfu Pyntinganefndar Evrópuráðsins, sem taldi notkun þeirra ekki standast skoðun.
—
> „Við þurftum að gera það síðast um helgina, þá þurftum við að vera með manneskju hérna, í handjárnum,” segir fangavörðurinn Heiðar Smith í viðtali við Kveik. Þessi fangi var unga konan sem teiknaði með blóðinu á vegginn.
>
> „Hvernig er hægt að loka manneskju inni í fangelsi sem má í raun ekki vera í fangelsi? Hún er of veik fyrir það,“ segir móðir hennar, Klara Birgisdóttir.
Leave A Reply
Du musst angemeldet sein, um einen Kommentar abzugeben.
1 Kommentar