Share.

    2 Kommentare

    1. > „Við fengum bréf í maí 2024 þar sem það var kynnt að þarna yrði rifið hús og annað byggt á grunni þess. **Við svöruðum því að við hefðum ekkert á móti því,** enda myndi það ekki skerða okkar birtu eða neitt. Svo í byrjun þessa árs var þetta aftur kynnt, hvenær þetta myndi hefja framkvæmdir og í apríl byrjuðu þeir að brjóta niður gamalt hús hérna og höggbora ofan í klett sem er undir öllum húsunum. Hér er enginn kjallari hjá okkur og ekki heldur í húsunum í kring vegna þessa.“
      >
      > Að sögn Hjálmtýs á þarna að vera tvöfaldur kjallari, tvær hæðir niður. Því um mikið verk að ræða. Þeir byrji gjarnan átta að morgni og borið standi yfir til klukkan fimm, stundum til klukkan sex. Nú séu líkur á því að þetta standi yfir út október.

      Það er lærdómur hérna.

    2. Ég hef unnið á skrifstofu sem gat fengið Heilbrigðiseftirlit Reykjarvíkur til að byrja að hóta rekstri tveimur hæðum fyrir neðan okkur með einhverskonar sektum ef hann gæti ekki haldið hávaðanum sínum undir einhverjum desibilaviðmiðum – stendur það bara skrifstofum til boða en ekki almenning?

      Það er alveg hellað að þurfa að búa undir endalausum vinnuhávaða alla daga, af því einhver dallur vill grafa sér tveggja hæða kjallara beint ofan í steinberg. Lífið er víst ekki Minecraft.

    Leave A Reply