
Wenn das Telefon Achse verkauft, ist eine Ansicht, 5000 Kr. Führen Sie dann 5000 KR direkt in die Taschen des Telefons oder zahlt das Telefon für jedes Interview eine bestimmte Menge an UP?
https://www.visir.is/g/20252771765d/siminn-ma-dreifa-efni-synar
Von Sku4
7 Kommentare
Síminn borgar Sýn (og jafnvel aðeins meira ef þeir eru að niðurgreiða til að halda kúnnum hjá sér)
Síminn þarf að borga Sýn þegar þeir selja áskriftir að Sýn.
Sýn yfirbauð boltan og ætlaði að nota sem gulrót til að selja öllum internet-/sjónvarps-/heimilispakka áskriftir og sópa til sín viðskiptavinum.
Mér sýnist á öllu að Sýn haldi núna á Svarta Pétri. Þetta var útreiknað hjá Símanum að fara ekki í eitthvað bull uppboð á móti þeim.
Græða eitthvað smá en engin ástæða fyrir viðskiptavini Símans að standa í veseni að skipta öllu út til að horfa á tuðruspark. Á sama tíma punga þeir ekki út milljörðum til að hafa „sýningarrétt“
Hvað gerðiru við peningin sem frúin í Símanum, í Sýn í Bretlandi rukkaði þig um mánaðarmótin?
Eftir að hafa þraukað í 2 ár með ömurlega Símaappið á apple TV og iPad til að horfa á fótbolta, ákvað ég að halda því áfram þrátt fyrir ýmsa vankanta á því.
Enski boltinn sem þeir bjóða upp á er bara aðgangur að rásunum í línulegri dagskrá (ekki hægt að horfa á staka þætti hvenær sem manni hentar). En fyrir nirfil eins og mig sætti ég mig við það. En í síðustu umferð fékk ég einhverra hluta vegna bara svartan skjá og hljóð á aðalrás Sýn Sport. Myndin birtist í smástund en fraus undantekningalaust innan nokkurra sekúndna.
Ég endaði á að horfa á Liverpool – Arsenal á einhverri Data Zone hliðarrás með enskum lýsendum sem tala bara um tölfræði og myndin er minnkuð til að koma tölfræði á skjáinn.
Ef þetta drasl skánar ekki fyrir lok næstu umferðar þarf ég að splæsa í þennan rándýra pakka hjá Sýn með óbragð í munninum. En Sýn má eiga það að umfjöllunin hefur verið talsvert betri hingað til en hjá Símanum.
Fyndið að heyra Sýn tala um að áhorfendur vilji hafa val þegar þeir bjóða ekki upp á að kaupa enska boltann einan og sér. Þeir gefa neytendum ekkert val en segja við viljum hafa það.
Ég mun ekki koma til með að borga 11 þúsund á mánuði fyrir þetta sorp sem þeir bjóða upp á. Myndi styrkja þá með að borga kannski 4k fyrir enska boltann einan og sér en ekkert annað. Á sportbörum eru ekkert smá margir sem kaupa sér streymi að öllu á $10 á mánuði sem mæla alltaf með því frekar en okrið á Sýn.
Ég er enginn viðskiptafræðingur, en ég hefði haldið að loka ekki á stóran hóp á landinu frá boltanum myndi skila meiri pening til Sýn, þegar þetta var í óvissu var ég frekar til í að streyma honum ólöglega í stað þess að ná í allar sýn græjurnar