
Haben Sie selbst keine Kinder, sondern werden alt genug, damit einige meiner Freunde Kinder im Grundschulalter und MV haben, was ich von ihnen höre. Dieser Sommerurlaub ist nur eine unglaublich große Kreatur, also klingt dieser Stapel nicht Algalin.
https://www.visir.is/g/20252767833d/stytta-thurfi-sumarfri-barna-um-ad-lagmarki-tvaer-vikur
Von logos123
13 Kommentare
meikar fullkomið sens,
Íslensk skólafrí eru svona löng af því að í gamla daga var gert ráð fyrir að krakkar hjálpuðu við búskap og fiskvinnslu frá vori til hausts. minni að þegar ég var í grunnskóla var maður búinn um miðjan mai og byrjaðu aftur í byrjun september.. skilst að þetta sé aðeins styttra núna samt Löngu úrelt og auðvitað á að samræma þetta við frí annarsstaðar í Evrópu.
Enn og aftur poppar þessi umræða upp aftur, En já ég er sammála, skólafríið er of langt. Líka þegar tekið er tillit til menntaskóla náms sem er 3 ár núna. Meiri tími til lærdóms myndi hjálpa þeim mikið.
9 til 11 vikur meðan foreldrar fá 4 til 5 vikur.
Mér finnst 2 vikur of lítið, stytta frekar um 2 vikur í sitthvorn endann.
Maður hefur reynt að koma börnunum í námskeið en auðvitað kostar það allt peninga og svo auðvitað nauðsynlegt skutl.
Kannski gerist eitthvað með núverandi ríkistjórn, þar sem gamla íhaldið er í minnihluta og engu mátti breyta.
Smá leiðrétting..
Hækka laun kennara og stytta sumarfríið, win/win?
Galið að fólk hérna vilji frekar stytta sumarfrí barna í stað þess að samfélagið lengi sumarfrí foreldra og fullorðinna einstaklinga.
Væri mjög áhugavert að heyra hvað grunnskólakrakkar hafa til að segja um svona hahaha
Hlýtur að segja sig sjálft að sumarfrí grunnskóla er alltof langt þegar borið saman við hin Norðurlöndin. A Íslandi 10 vikur en Svíþjóð Noregur og Danmörk 6 vikur.
Skólasamfélagið er svo gott þegar það myndi henta kapítalisma en svo hræðilegt þegar það þarf að setja peninga í að halda uppi alvöru skólasamfélagi. Sama bullið í nýjum umbúðum.
Þetta snýst bara um hagnað. Segið það bara. „Ó en er einhver að hugsa um börnin?“
Man enginn eftir því hvernig var að vera barn? Ég dauðvorkenndi börnum í öðrum löndum sem fengu miklu styttra sumarfrí. Mér finnst allt of oft talað um börn út frá einhverju hagræði fyrir foreldrana og merkingarlausum samanburðum við önnur lönd (til dæmis þegar framhaldsskólinn var styttur, sem enginn raunverulega í framhaldsskóla vildi, bara einhverjir pólitíkusar að einblína á það að krakkar byrjuðu fyrr í háskóla í öðrum löndum), án þess að pæla í hvernig þeim líður sjálfum.
Alveg vit í þessum pælingum en það yrði eitthvað að semja við KÍ um þetta.
Hvað um að lengja í staðinn sumarfrí allra? xD
ég get alveg unnið í kringum sumarfríin. Frekar að þessir endalausu skráningardagar og starfsdagar og slíkt gegnum veturinn séu að fokka í mér.
Má alveg gera það. Þeir sem tala um að börnin vila lengra frí eru oft að hugsa um sína upplifun. Það á ekki við í mörgum tilvikum, ansi mörgum líður betur þegar daglegt líf er komið í rútínu. Gleymum svo ekki því að foreldrar eru komnir á fullt í vinnu þannig að það skapar vandamál varðandi gæslu á börnunum á meðan foreldri er í vinnu.
Svo er skólavist góð leið til að koma í veg fyrir félagslega einangrun, það eru ekki öll börn með stórann vinahóp utan skóla.
Löngu tímabært að taka þessa umræðu. Ég skil ekki hvers vegna við stillum kerfinu okkar upp þannig að skólinn byrjar á haustin og endar á vorin í stað þess að byrja hann í janúar og láta hann enda í desember.
Það mætti vel hafa skólann allt árið um kring með nokkrum frídögum td jóla- og páskafríum og svo 4-5 vikna sumarfríi, eins og á vinnumarkaðnum, sem foreldrar geta tekið þegar að þeim hentar á sumarfrístímabilinu.
Þunginn í kennslunni gæti þá farið fram utan sumarfrístímans svo krakkar missi ekki mikið úr náminu, en skólinn væri svo í hægagangi yfir sumarið á meðan krakkar og kennarar taka sín frí, og hægt að finna eitthvað annað að gera en að taka inn nýtt námsefni. Mætti td vinna í félagsstarfi, útivist, íþróttum, læra efni sem er ekki á námsskránni og ekki “til prófs” og margt fleira.