Erhielt die Erlaubnis des Bezirksgerichts, den Sarg und die Tochter des Ehemanns zu besuchen – rúv.is

    https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-08-27-fekk-leyfi-heradsdoms-til-ad-vera-vidstodd-kistulagningu-eiginmanns-og-dottur-451945

    Von birkir

    Share.

    1 Kommentar

    1. >Konan neitar sök og það hefur áður komið fram að eiginmaður hennar glímdi við alvarlega nýrnabilun og hefði átt að vera reglulega í skilunarvél. Þá hefur líka komið fram að **fjölskyldan öll sendi ættingjum sínum erfðaskrá þar sem undir eru eignir upp á milljarð króna**. Og að hún átti bókaða ferð heim til Írlands sama dag og starfsmaður á Edition-hótelinu kom að þeim. Þau höfðu þá verið hér í viku, farið í skoðunarferðir eins og venjulegir ferðamenn en aldrei farið langt sökum veikinda mannsins.
      >
      >Samkvæmt upplýsingum Spegilsins hafnaði lögreglan í sumar beiðni konunnar um að fá að vera viðstödd kistulagningu eiginmanns síns og dóttur sem bæði eru jarðsett hér á landi.
      >
      >Konan leitaði í framhaldinu til Héraðsdóms Reykjavíkur til að fá þessari ákvörðun hnekkt, það væri sér mjög í mun að fá að kveðja látinn eiginmann sinn og dóttur – **fjölskyldan hefði öll komið sér saman um það að binda endi á líf sitt hér á landi** og að þau hefðu verið náin. Engin ástæða væri fyrir því að meina henni að vera viðstödd kistulagningu sinna nánustu ættingja.

    Leave A Reply