> Sjálf vill Sara að í náminu sé farið yfir hvernig á að haga bekkjarstjórn og einkunnagjöf, nota Mentor, eiga samskipti við foreldra, sinna börnum með sérþarfir, hvernig tækla eigi einelti og ofbeldi, búa til námsmat og hæfniviðmið og fleira. En ekkert af þessu hefur verið farið inn á.
>„Mér finnst ég ekki vera að læra neitt. Ég kannski mæti í tíma og við erum að kubba. Svo mæti ég í næsta tíma og við erum í Varúlfi og nafnaleik. Við erum líka að æfa okkur í að halda bekkjarkvöld. Svo erum við að tala um kenningar,“ segir Sara í samtali við Morgunblaðið.
>Hún segir mikið um endurtekningar í kennslufræðiáföngum, eins og kennarar séu ekki meðvitaðir um hvað sé verið að fara yfir í öðrum áföngum en þeir sjálfir kenna. Þá virðist sem margir kennaranna hafi ekki starfað innan grunnskólanna árum saman og hafi því litla tilfinningu fyrir stöðunni og áskorununum þar.
Höfum þetta í huga næst þegar kennarar svara gagnrýni á skólakerfið þannig að þeir séu sérfræðingar.
birkir on
mér finnst þetta stórfurðuleg frásögn
ég hef verið nemandi í kennslufræði til kennsluréttinda við menntavísindasvið háskóla íslands, við fórum bara aldrei nokkurn tímann í einn einasta leik eða dundur
ég hef mínar skoðanir á náminu, aðallega góðar – einhverjar vægar kvartanir sem snúa eiginlega ekki að einhverju sem deildin hafði stjórn á
en fyrir mér var námið bara lestur á akademískum fræðigreinum á sviði kennslufræði, og í tímum fyrirlestrar, verkefni og umræður um þær greinar – svo reynsla, þ.e. kennsla á vettvangi í skóla og undirbúningur á kennslustundum
það væri mjög áhugavert að sjá kennsluáætlun úr þeim námskeiðum sem Sara hefur setið, því þetta samræmist engan veginn minni reynslu
matthia on
> „Sara Júlíusdóttir, sem er að hefja sitt þriðja ár í grunnskólakennaranámi“
Hún er semsagt búin með tvö ár af fimm.
Guðmundur Engilbertsson skrifar á Facebook vegg sinn:
> Annað slagið birtast fréttir eins og þessar. Nemendur í kennaranámi segjast ekki fá kennslu um eitt og annað. Stundum eru það jafnvel nemendur sem eru í grunnnámi og eiga kannski eftir nokkur ár, m.a. veigamesta hluta starfsnáms sem er mikilvægur hluti kennaranáms og getur spannað heilt kennsluár. Nemendur segjast t.d. komast hjá því að læra um lestur eða læsi, foreldrastarf, bekkjarstjórnun o.s.frv. Í grunnskólakennaranámi við HA eiga nemendur að læra um þetta allt — í HA og/eða á vettvangi í grunnskólum. Nemendur í fimm ára grunnskólakennaranámi taka t.d. bæði námskeið í byrjendalestri (lestrarkennsla) og læsi til náms eða skilnings, sitja námskeið um foreldrasamstarf, starfsþróun, bekkjarstjórnun ….Ég held að við getum öll tekið undir að nemendur sem eru aðeins búnir með hluta af námi, jafnvel ekki hálfnaðir, eigi enn eftir að læra margt. Það ættu fjölmiðlar að hafa í huga. Fjölmiðlar mættu einnig gjarnan kynna sér námskrár kennarnáms — þess vegna spyrja út í þær. Þær má auðveldlega finna á netinu.
Mr_bushwookie on
Ég var í Kennó 2012 og við kvörtuðum í deildina yfir því að fá enga kennslu í grunn fyrirbærum eins og sð búa til verkefni, meta svör. Búa til próf, stjórna hóp eða búa til kennsluáætlun.
Við heyrðum að það hafi verið kvartað líka tvö ár á undan.
Þetta er greinilega mismunandi.
Leave A Reply
Du musst angemeldet sein, um einen Kommentar abzugeben.
4 Kommentare