Share.

    2 Kommentare

    1. > Sem dæmi þurfti hann að skríða eftir gólfum og tína upp karamellubréf á meðan sá sem skipaði honum sat í lyftara og benti honum hvert hann ætti að skríða. Þeir neituðu að tala við hann á íslensku og reyndu að koma því þannig fyrir að hann kæmi alltaf of seint í hina vinnuna sem hann sótti með því að hleypa honum ekki úr vinnu nema á síðustu stundu þannig að hann kom of seint þangað. Samt var dagsverkinu lokið hjá þeim þannig að hann hefði svo auðveldlega getað komist á réttum tíma á hinn vinnustaðinn en þeir gerðu sér að leik að kvelja hann svona. Eins var hann látinn klifra upp á stæður þar sem vörubretti eru geymd sem enginn annar þurfti að gera og er að auki stórhættulegt.
      >
      > Síðan kom svarti dagurinn, 27. júlí 2023, þegar eineltið náði sínum efstu hæðum sem endaði þannig að drengurinn „varð“ undir lyftara þar sem þetta vitgranna fífl var að fjarstýra honum sem endaði með því að hann keyrði, þvert yfir hann og bakkaði svo til baka. Þannig að fótur hans fór í mél, mjöðm, hendi og öxl og bak og er það kraftaverk að hann skuli vera á lífi í dag þótt dekkið á lyftaranum snerti eyrnasnepil hans. Í dag bíður hans að vera örkumla til lífstíðar. Drengurinn fullyrðir það við mig að þetta var ekki slys heldur ásetningur og ef ég trúi einhverjum í þessu þá er það honum.
      >
      > Fyrir hvað var það að vera öðruvísi útlits eða af því að hann talaði ekki fullkomna íslensku? Hver getur skýringin verið? Og það sem er verst er að gerandinn fékk einungis áminningu í starfi. Hvert erum við eiginlega komin á meðan drengurinn líður vítiskvalir alla daga og mun örugglega gera allt sitt líf og það er ekki enn búið að rannsaka málið til hlítar þó svo að liðin séu tvö ár síðan? Þessi drengur hefur verið að fara í kostnaðarsamar aðgerðir til útlanda og það hefur ekki komið króna frá fyrrverandi vinnuveitanda eða nokkur stuðningur frá þeim.“

    2. það er einhver fisklykt af þessu.

      Vikuna áður en greinarhöfundur verður einn ræðumanna á útifundi rasista að þá skrifar hann grein þar sem hann mærir tvo innflytjendur sem hann þekkir persónulega ..

      Alls ekki að segja að sagan sé ekki sönn, heldur frekar að greinarhöfundur sé ekki að setja hana fram í góðri trú.

    Leave A Reply