Share.

    6 Kommentare

    1. Equivalent_Day_4078 on

      Týpísk gaslýsing og efsökunarbeiðni. “Fyrirgefðu að þú hafir tekið þetta svona nærri þér”.

    2. Æ sorrí memmig að veitast smá að lýðræðinu, ég er svo flippuð stundum 💅✨️🤪

    3. Henni þykir þetta ekkert andskotans neitt leitt! Hún vissi nákvæmlega hvað hún var að gera.

      Sjálfstæðismenn hafa alltaf verið þeirrar skoðunar að þeir séu „eigendur“ Íslands og þegar þeir lendi í minnihluta þá séu það bara einhver „mistök“ eða „frávik“ sem muni leiðréttast í næstu kosningum.

      Nú þegar sú staða er komin upp að Sjálfstæðismenn eru í minnihluta bæði á þingi og í borg kemur þetta viðhorf bersýnilega í ljós. Þeir höndla ekki að missa valdið úr höndunum á sér og fara á algjöran yfirsnúning í örvæntingu og funtaskap.

      Þetta viðhorf hjá Sjálfstæðismönnum er meginástæðan fyrir því að flokkurinn þeirra er óstjórntækur. Óstjórntækur á þann hátt sem kom í ljós í þeim glundroða sem ríkti í borginni á kjörtímabilinu 2006-2010 þegar hver borgarstjórnin á fætur annarri sprakk með nokkurra mánaða millibili, glundroði sem tók ekki enda fyrr en að Sjálfstæðisflokkurinn endaði í minnihluta eftir borgarstjórnarkosningarnar 2010. Óstjórntækur á þann hátt að engin ríkisstjórn á tímabilinu 2013-2024* entist út kjörtímabilið. Samnefnarinn hérna er Sjálfstæðisflokkurinn.

      Hann er óstjórntækur vegna þess að hann telur sig yfir aðra flokka hafinn. Telja það ekki sitt verk að vinna MEÐ öðrum stjórnmálaflokkum, heldur til að segja öðrum stjórnmálaflokkum fyrir verkum. Það er þetta viðhorf sem gerir það ómögulegt fyrir aðra flokka að vinna með þeim, sem endar með því að ríkisstjórnir og borgarstjórnir með þá innanborðs springa.

      Það þarf að koma því inn í hausana á Sjálfstæðismönnum að þeir eru ekki „eigendur“ Íslands, þeir eiga ekki einhvern rétt á því að vera við völd, það eru ekki einhver mistök þegar þjóðin kýs þá ekki og þeir enda í minnihluta, og að þeir eru hér til að vinna með öðrum stjórnmálaflokkum, ekki til að segja þeim fyrir verkum.

      Besta leiðin til að þetta pakk átti sig á því er að það verði í minnihluta bæði á þingi og í borg í mjög langan tíma, helst áratugi.

      *Covid stjórnin er hér undantekning en það voru fordæmalausir tímar og það ríkti óvenjulega mikil samstaða meðal landsmanna á þessum tíma sem skilaði ríkisstjórninni endurkjöri. En sprungurnar voru byrjaðar að sjást fyrir faraldurinn og þegar hann endaði byrjaði allt um leið að fara í háaloft hjá ríkisstjórninni.

    4. surefnisthjofur on

      Enn ein birtingarmynd þess hvað lýðræðiskjörnir gera bara það sem þeim dettur í hug án afleiðinga. Viðkomandi væri búin að segja af sér ef við værum í Skandinavíu og ætti ekki endurkomu í pólitík ævilangt

      Enn hey! Fengum „fyrirgefðu að það láti þér líða þannig“ fæ flashback í fyrra samband þar sem allir voru voða leiðir yfir hvernig manni leið en ekkert sorry yfir gjörðum sínum. Farðu í rassgat

    Leave A Reply