Share.

    2 Kommentare

    1. > „Það er komin upp ný staða í íslenskum stjórnmálum sem er fordæmalaus í sögu lýðveldisins,“ sagði Kristrún. Hún segir minnihlutann standa í vegi fyrir lýðræðislegri afgreiðslu mála á Alþingi og ekki viðurkenna niðurstöður kosninga heldur freista þess að stýra þinginu þrátt fyrir að vera ekki með meirihluta á Alþingi.

      > Framferði minnihlutans á sér engin fordæmi, segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
      >
      > Lýðræðið er dýrmætt en viðkvæmt,“ segir Kristrún og kveður það ekki aðeins mótast af skrifuðum reglum heldur líka óskrifuðum.
      >
      > Nú er verkefni okkar að sýna að lýðræðið virki og að valdaskipti geti átt sér stað í kosningum, segir Kristrún.
      >
      > „Það er skylda mín sem forsætisráðherra að standa vörð um lýðræðið í landinu,“ segir Kristrún. „Við munum verja lýðveldið Ísland, við munum verja stjórnskipan landsins og heiður Alþingis.“

      [segir á RÚV](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-07-10-stjornmalin-i-dag-forsaetisradherra-flytur-avarp-vid-upphaf-thingfundar-448076) og er skrifað upp úr ræðu forsætisráðherra

    2. LadyMargareth on

      Ég skil ekki á hvaða vegferð minnihlutinn er. Þetta er svo mikið virðingarleysi við lýðræðið og fólkið í landinu. Er þetta fólk svo rækilega með haus og hendur á kafi í vösum útgerðarmanna að það sér ekki hvaða óleikur þetta er? 

    Leave A Reply