Share.

    1 Kommentar

    1. Nei nú hringi ég í Jens. Útsendarar sægreifanna nenna ekki einu sinni að skrifa blekkingargreinarnar sínar sjálfir lengur.

      Við sjáum dæmi úr pistlinum:

      >Samt sem áður hefur ráðherrann ákveðið að bæta við kvóta. ***Þetta er ekki „framtak“ – þetta er brot á grundvallarreglum réttarríkisins.***

      > Að úthluta afla sem ekki er til, og vona að Alþingi „leiðrétti“ það síðar, ***er ekki stjórnsýsla – það er stjórnleysi.***

      Dæmigerð ChatGPT setning. „Þetta er ekki X, þetta er Y.“

      > Með því að úthluta 1.000 tonnum í viðbótar strandveiðiheimildir – án þess að lagagrundvöllur liggi fyrir – er verið að búa til hættulegt fordæmi. Slík stjórnsýsla er ***hvorki fagleg, lögmæt né forsvaranleg.***

      Hér hefur ChatGPT splæst í einn nettann lista af þremur hugtökum eins og það er vant að gera.

      > Engar heimildir ***–*** samt úthlutun

      > Ráðherrann ábyrgur ***–*** ekki embættismenn

      Takið eftir að táknið er ekki bandstrik, heldur er það eitthvað sem kallast en dash eða hálfstrik. Það er óalgengt í dags daglegu rituðu máli en mjög algengt í ChatGPT texta.

      Rúsínan á pylsuendanum er að þetta fyrirtæki er með einhverskonar gevigreindar blæti sem sést glöggt á heimasíðunni þeirra.

      https://www.arcticeconomy.com/

      En í alvörunni talað, hver í ósköpunum er tilgangurinn með skoðanapistlum ef þú ætlar ekki einu sinni að tjá þínar eigin skoðanir? Einstaklega hallærislegt dæmi.

    Leave A Reply