
Hört Radio und dort, der Vorsitzende von SA, erklärt, dass die Zunahme der Kaufkraft in letzter Zeit 2%betrug. Wir wissen es in unserem Haus nicht. Im Gegenteil, er hat abgenommen. Was sagen die Leute, nimmt Ihre Einkaufskraft zu? Wie ist das Haus komponiert und wo kommt der Anstieg/Schrumpfung heraus?
Bearbeiten:
https://www.visir.is/g/20252744918d/ekki-gagn- legt-ad-stilla-fyrir-taekjum-upp-ngn-starb–folki
Von Vitringar
9 Kommentare
Mun verri hér, sérstaklega þar sem matarkarfan er sjaldan undir 20.000. Við erum þrjú fullorðin og engin ofnæmi eða óþol sem hafa áhrif
Ég held að mæling þeirra á kaupmætti endurspegli ekki vel ráðstöfunartekjur. T.d. myndi hækkun á húsnæðisverði vera inni í jöfnunni en ekki vaxtahækkunin á húsnæðisláninu hjá fólki.
Formaður Samtaka Atvinnulífsins er einkaráðinn. Einkaráðinn af einkasamtökum sem standa í sérhagsmunagæslu fyrir mjög lítið mengi Íslendinga. Sérhagsmunagæslu sem stangast beint á við hagsmuni felstra annara íslendinga. Hagsmuni eins og hækkun á kaupmætti heimilanna því sú hækkun myndi koma á kostnað lækkunar á gróða skjólstæðinga Samtaka Atvinnulífsins.
Þessi ráðning er enganveginn í höndum almennings. Við getum ekki kosið nýjan formann SA ef viðkomandi er staðinn að því að ljúga að okkur – en það er hægt að ráða nýjan ef hann segir eitthvað sem kemur skjólstæðingum SA illa.
Ekki hlusta á fólk sem fær borgað fyrir að tala niður hagsmuni þína og þú hefur enga leið til að halda ábyrgt fyrir að ljúga að þér.
Mikilvægt að hafa í huga hvernig tölur eru reiknaðar til að skilja hvað liggur að baki, sérstaklega þegar lobbíistar leggja þær á borð.
Breyting á kaupmætti launa er reiknaðar með að bera saman meðallaun/tekjur við verðbólgu. Báðar þessar tölur eru meðaltöl og segja þess vegna ekkert um dreyfingu þeirra, þar að auki er verðbólgu mæld með körfu af vörum sem á að passa fyrir einhvern meðalmann enn passar oft mjög illa við ákveðna hópa.
Kaupmáttar tölur eru að öllu leiti ómerkar fyrir einstakling án þess að athugað með hvernig dreyfing þeirra á við hann.
Undanfarin ár og áratugi hefur til að verðbólga hækkað mest vegna nauðsynjavara og húsnæðis á meðan lúxusvörur hafa ef eithvað er dregið hana niður. Ásama tíma hefur auður landsins og reyndar heimsins alls dreyfst á sífellt færri hendur. Þetta tvennt þýðir að þau kaupmáttur mögulega hækki þýðar það alls ekki að kaupmáttur meðalmannsins hafi batnað.
Að meðaltali. Það liggur nokkuð beint við að fletta því upp.
Verðlag hefur hækkað um 3.8% á síðstu 12 mánuðum. Laun hafa hækkað um 8% á síðustu 12 mánuðum. Heildarhækkun á um 4% á síðasta ári.
Á síðustu þremur eru þetta, 20.7% verðbólga, 26.6% launahækkun, þannig að kaupmáttur hefur aukist um 1.6% á ári.
Ef þú vilt meta tölurnar á eigin heimili þá er líklega hjálplegt að bera saman breytinguna á eigin launum og opinberar verðbólgutölur.
Til að koma með mótrök þá hafir húsnæðislánavextir verið að lækka og ég finn fyrir því. En allt hitt að hækka.
Ekki hlusta á formann SA þegar kemur að einhverju öðru en það sem SA vill. Þetta eru hagsmunasamtök sem starfa ekki við að upplýsa almenning.
Kaupmáttur meðallauna, kaupmáttur lægstu launa o.s.frv. er auðvitað alltaf öðruvísi en það sem ég *held* þú sért að tala um sem er kaupmáttur króna.
Mjög erfitt að segja þessi gögn koma held ég frá hagstofunni og ættu því að vera ok.
En hún er auðvitað frá SA og mun alltaf spinna söguþráðinn út frá hagsmunum SA
Sjálfur vil ég ekki kannast við neina kaupmattarryrnun en er ekki á lægstu launum svo því sé haldið til haga.