Share.

    4 Kommentare

    1. Johnny_bubblegum on

      Það ætti að vera hámark á starfslokasamningum og réttindum við starfslok. Einhver X upphæð lægstu launa eða eitthvað.

      Hvort sem það sé þetta bull fyrir aðalinn hjá ríkinu eða starfslokasamningar fyrir aðalinn í einkageiranum.

    2. Já sæll…

      Hér er 4. málsgrein 20. greinar stjórnarskrár sem vitnað er í:

      >Forseti getur flutt embættismenn úr einu embætti í annað, enda missi þeir einskis í af embættistekjum sínum, og sé þeim veittur kostur á að kjósa um embættaskiptin eða lausn frá embætti með lögmæltum eftirlaunum eða lögmæltum ellistyrk.
      Með lögum má undanskilja ákveðna embættismannaflokka auk embættismanna þeirra, sem taldir eru í 61. gr.<

      Þetta er svakalegt og tíminn lengist eftir því sem eftirlaunaaldurinn hækkar, það er að segja að ég viðkomandi hefði gert þetta fyrir 20 árum þá væru þetta 6 ár, ekki 9.

      Það er mjög varhugavert að hafa þetta svona þar sem hver einasti embættismaður getur skrifað einhverjar athugasemdir á Facebook í þeim tilgangi að láta sig verða óhæfan í starfi og þar með fara fyrr á eftirlaun. Því lengur sem menn þurfa að vinna því líklegri eru þeir til að gera þetta.

      Auðvitað má finna þennan texta í stjórnarskránni 1874 og stjórnarskrá konungsríkisins Íslands 1920. Þetta er texti frá þeim tíma þegar danskir aðalsmenn voru helst gjaldgengir í að verða embættismenn. Konungsríkjum gengur vanalega ekki vel enda ganga þau útá að hampa meðalmennskunni sem mest því menn eru ekki metnir til metorða. Það er semsagt kominn tími á nýja íslenska stjórnarskrá, ekki þetta útlenda aðalshyggedrasl!

    3. Loksins dómsmálaráðherra sem tekur á þessu máli. Maðurinn virðist gjörsamlega blindur fyrir því að ummæli og gjörðir eru ekki við hæfi þegar þú ert saksóknari, hvað þá varasaksóknari ríkisins.

      Það sem hann hefur sagt og gert ert kannski ekki það mikið þegar á heildina litið og það getur vel verið að skoðanir hans á þessum málum hafi ekki áhrif á hana störf. En fjandinn hafi það, það þarf ekki að grafa meira undir trausti á réttarkerfinu.

    Leave A Reply