Share.

    8 Kommentare

    1. Eigandi Álfsins í Efra-Breiðholti segir í samtali við Viðskiptablaðið að starfsmenn hafi verið fljótir að hringja á lögregluna eftir árásina, sem hafi síðan mætt og handtekið tvo viðskiptavini sem höfðu orðið fyrir árásinni….

      Áhugavert verklag

    2. „Starfsmenn hafi verið fljótir að hringja á lögregluna eftir árásina, sem hafi síðan mætt og handtekið tvo viðskiptavini sem höfðu orðið fyrir árásinni.“

      Hvað í fjandanum???!

    3. Áhugaverð frétt. Maður les ekki margar svona fréttir hjá Viðskiptablaðinu.

    4. Hvað ætli hafi vakið áhuga Viðskiptablaðsins til að skrifa þessa frétt ?

    5. ultr4violence on

      Ég er á því að ef þú ert með hóp fólks sem finnst það vera utanvelta við samfélagið, þá hefur það enga ástæðu til að virða reglur þess samfélags. Þá hvort þau tali íslensku eða eitthvað annað tungumál.

      Þetta er stéttar-tengt vandamál þegar að vandræðagengin eru af íslensku bergi brotin.

      Þau eru það enn þegar þau eru fjölþjóðleg, en margfaldast eftir því sem menningar- og tungumálamunur eykst.

      Það síðasta sem maður vill fyrir inngildingu nýbúa og barna þeirra er að þau búi í hverfi sem gerir inngildingu erfiða jafnvel fyrir hefðbundna íslendinga. Þetta er bara að bæta einu erfiðleikastigi ofaná annað.

      En nýfrjálshyggjunni er alveg sama, þetta fólk eru bara neytendur, skattgreiðendur og vinnuafl. Því má hola niður hvar sem er og restin reddast einhvernveginn.

      Fyrirtækjaeigendurnir búa svo í Garðabæ og Seltjarnanesinu þar sem þau geta grillað á kvöldin og verða ekki var við neitt í sínu nágrenni. Já og ekki séns að þau séu að fara að borga meiri skatta til að leysa svona félagsleg vandamál.

      Þeirra er að græða, ekki greiða.

    6. Það sem mér fannst helst standa uppúr við lestur þessarar fréttar:

      > Að sögn eiganda er hópurinn vel kunnugur íbúum hverfisins en um sé að ræða ungmenni í grunnskólum hverfisins.

      Það er byrjað ungt.

      > Hún bætir við að lögreglan hafi verið mjög fljót að mæta á barinn einfaldlega vegna þess að lögreglan hafi verið að sinna öðru útkalli í Hólabrekkuskóla á sama tíma í tengslum við önnur ungmenni sem sögð voru vopnuð hnífum.

      Þetta er algjör faraldur.

      > Einn strákurinn reif svo bara kjaft þegar lögreglan var að fylgja honum frá svæðinu og spurði gestina hvort þau vildu að hann myndi stinga þau líka, með lögguna við hliðina á sér.

      Halda þessir einstaklingar að þeir séu hafin yfir öll lög og reglur?

      > Það eru börn sem þora ekki að fara ein til að kaupa sér ís. Einn pabbinn sagði mér að börnin þora ekki lengur að fara þangað fótgangandi og að fjölskyldur vilji frekar fara í bíltúr eitthvert annað til að fá sér ís.

      Fjölskyldur geta ekki einu sinni liðið vel og upplifað sig öruggar í sínu eigin nærumhverfi.

      > [Húsvörðurinn:] „Þá brunar hann fram hjá mér og ég kem þá við öxlina á honum til að segja aftur að þetta mætti ekki. Hann fer þá af hjólinu og segir að ég megi ekki snerta hann þar sem hann væri af erlendu bergi brotinn.“

      Halda þeir að íslensk lög eiga ekki við um erlenda einstaklinga?

      Þetta er enn ein fréttin sem málar sláandi mynd af þróun samfélagsmála á þessu svæði. Þetta er þróun sem veldur vægast sagt áhyggjum og þyrfti að bregðast harkalega og snögglega við af hálfu löggjafavaldsins. Þegar um er að ræða einbeittan brotavilja eins og í svona tilvikum þá ætti að sækja viðkomandi til saka og dæma eins og hann hafi náð lögaldri.

    7. “Eigandi Álfsins í Efra-Breiðholti segir í samtali við Viðskiptablaðið að starfsmenn hafi verið fljótir að hringja á lögregluna eftir árásina, sem hafi síðan mætt og handtekið tvo viðskiptavini sem höfðu orðið fyrir árásinni.”

      Klassík frá íslensku lögreglunni.

    Leave A Reply