> Héraðssaksóknari man engin fordæmi þess að eins umfangsmiklum gögnum hafi verið stolið frá embættinu og í tilfelli fyrirtækisins PPP, sem fjallað var um í Kveik í síðustu viku. Nýjar upplýsingar sýna umfang þeirra gagna sem voru í fórum fyrirtækisins. Þar eru bæði rannsóknargögn lögreglu og gögn sem sérstakur saksóknari aflaði með dómsúrskurði.
>
> Þar kemur fram að á meðal þeirra gagna sem fyrirtækið PPP hafði undir höndum voru persónuupplýsingar úr stórum sakamálum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Gögn sem þeir notuðu síðan til að kynna starfsemi sína fyrir fyrirtækjum og stofnunum, starfsemi sem meðal annars fólst í því að safna upplýsingum og fylgjast með einstaklingum.
>
> Önnur gögn koma frá embætti sérstaks saksóknara en þeirra var aflað eftir dómsúrskurð og vörðuðu rannsókn mála hjá embættinu. Sum gagnanna í fórum PPP koma þó málunum ekkert við, eins og til dæmis samræður fólks um persónuleg mál, og hefði því aldrei átt að geyma.
>
>Ólafur Þór Hauksson hafði þetta að segja þegar Kastljós sýndi honum gögnin:
>
>„*Mér sýnist á þessu sem ég hef fengið að sjá hjá þér í dag að þetta séu gögn sem stafa af rannsóknum frá okkur, eða embætti sérstaks saksóknara, sem var fyrirrennari Héraðssóknara. Þetta eru að sjálfsögðu ekki gögn sem eiga að vera úti í samfélaginu. Þetta eru gögn sem eiga að vera bundin trúnaði og hefðu aldrei átt að fara héðan út úr húsi,*“ segir Ólafur í viðtali við Helga Seljan.
>
>*Manstu eftir því að þetta hafi gerst áður, með svona gögn?*
>
>„Ekki svona gögn, ekki í þessari mynd nei. Ég hef ekkert fordæmi á takteinunum sem að líkist þessu,“ segir Ólafur Þór Hauksson.
>
> **Nánar verður fjallað um málið í Kastljósi klukkan 19.35 og öðrum miðlum RÚV í kvöld.**
Leave A Reply
Du musst angemeldet sein, um einen Kommentar abzugeben.
1 Kommentar