Share.

    3 Kommentare

    1. Nokkrir punktar af hverju við höfum notað einkunnir í mörg hundruð ár:

      1. Einkunnir endurspegla námsárangur. Það að nota einkunnir við inntöku í framhaldsskóla er góð leið til að byggja á verðleikum.

      2. Það að byggja á einkunnum við inntöku hvetur til náms.

      3. Einkunnir í hlutlausum prófun veita góða vísbendingu um framtíðar námsárangur.

      4. Það er takmarkað pláss í vinsælustu skólunum. Það að nota einkunnir við úthlutun veitir þeim plássið sem eru líklegastir til að nota tækifærið vel.

      5. Einkunnir eru hlutlausar (a.m.k. ef prófin eru samræmd og hlutlaus).

    2. Johnny_bubblegum on

      „*Það hefur verið lenska að horfa bara á einkunnir og ákveðnir skólar hafa bara valið nemendur út frá einkunnum sem getur ekki verið alltaf réttlátt,*”segir ráðherrann.

      Fyrirsögn mbl og það sem maðurinn sagði stemmir ekki, en það er svo sem viðbúið þegar kemur að mbl og flokki fólksins.

      Ekki að ég sé í liði með Guðmundi, held hann sé alls ekki starfinu vaxinn, en slagsiða mbl verður meiri með hverjum deginum.

      Ég ætla að búa til eitt dæmi. Nemandi í Garðabæ a móti nemanda i efra Breiðholti. Þeir eru jafn gáfaðir, jafn klárir, jafn duglegir. Í bekk nemandans í efra Breiðholti eru 15 af 23 nemendum með greiningu eða með erfiðar aðstæður heima fyrir. Þetta eru ekki ýkjur, svona er þetta stundum í Breiðholti.

      Hvor nemandinn er líklegri til þess að njóta 10 árum af betri kennslu í sínum skóla?

      Hvor nemandinn er líklegri til þess að enda með hærri meðaleinkunn og komast i Versló eða MR?

      Hvers vegna snýr samtalið bara að því hversu ósanngjarnt það væri fyrir krakkann í Garðabæ ef krakkinn í Breiðholti kemst í Versló með aðeins lægri meðaleinkunn?

      Hvar er sanngirnin fyrstu 10 árin í þeirra grunnskólagöngu?

      Er sanngjarnt að segja að nemandinn í Garðabæ sé betri nemandi og eigi skilið að komast i vissan skóla af því hann er með 0,5 hærri meðaleinkunn?

    3. Only-Risk6088 on

      Varsity blue skandallinn kemur strax í hugann. Þar sem foreldrar gátu komið börnum í skóla sem var erfitt að komast inn í með því að fæ fyrirtæki til að fake-a íþróttaferil eða annað sem skólarnir litu á sem kost. Nemendur með verri einkunnir komust inn með því að eiga ríka foreldra sem voru jafnvel að styrkja skólana beint.

      En stærsta vandamálið er einkunnaverðbólga, það eru alltof margir með nánast 10 í meðaleinkun og þá veltir maður því fyrir sér hvort það sé raunhæft. Hvort prófin séu jafnvel sambærileg milli skóla og að kennarar meti nemendur jafnt á landsvísu. Samræmd próf eru algjör snilld hvað þetta varðar en hafa sína galla.

    Leave A Reply