Share.

    20 Kommentare

    1. Áhuginn hjá mér á að fara til Ameríku hefur snarminnkað sl. ár. TSA, ICE og almenn bilun veldur því.

      Mér finnst það leiðinlegt því það er heilmargt sem ég væri til í að sjá en ég bara nenni ekki mögulegu veseni, þótt það sé ólíklegt að ég lendi í nokkru sem miðaldra hvítur karlmaður.

    2. prumpusniffari on

      Stórfjölskyldan var búin að plana ferð til Ameríku á árinu. Hættum snarlega við.

    3. Ég fór til bandaríkjanna í febrúar (keypti miða áður en fíflið var kosið) og mér leið alltaf smá óöruggum að vera þarna. Það er svaka pólitísk spenna í fólki.

    4. Icelander2000TM on

      Ég á vini í Bandaríkjunum, langar virkilega að hitta þá en líst ekkert á CBP.

      Planið er núna að hittast í Kanada.

    5. StefanOrvarSigmundss on

      Ég hef farið öðru hvoru síðan Bush yngri var forseti og á stjórnartíma allra sem á eftur komu nema Trump.

    6. anarhisticka-maca on

      kærastinn minn fór til kaliforníu í fyrra til að heimsækja mig áður en ég flutti hingað. TSA í seattle fór að hugsa að hann væri að reyna að komast inn til að vinna svart því hann sagðist vera nemandi og þeim grunaði hann ekki nógu efnaðan í flugmiða. hann var settur í varðhald á meðan það var hringt í mig til að sanna frásögnina hans og svo var honum leyft að halda ferðinni áfram. ekkert fleira fór úrskeiðis en eftir kosningarnar hef ég varað hann að fara ekki til baka, sama hvort ég fari, í amk 4 ár. 

    7. Ég var að afbóka ferð þangað með fjölskyldunni. Gatum sem betur fer fengið peningana til baka.

    8. Johnny_bubblegum on

      Ætluðum til Florida.

      Förum eitthvað annað í staðinn.

      Vandinn er ekki bara hvað landsmæraeftirlitið er að gera í dag eða hvað gerðist fyrir manninn frá Maryland sem var sendur til El Salvador heldur sá að maður pantar ferðir marga mánuði fram í tímann.

      Hverjar verða reglurnar í Bandaríkjunum þá?

    9. Johanngr1986 on

      Bandaríkin eru ótrúlegt land og um margt athygliverð.
      Ég gleymi því samt aldrei þegar íranskur vinur (vinar míns), en hann var í námi í Svíþjóð, fór til Bandaríkjanna á verkfræðiráðstefnu en hann átti að flytja erindi þar. Hann (einn yndælasti náungi sem ég hef kynnst) áttaði sig ekki á morgni flugsins að Trump hafði sett bann á mörg múslímsk ríki (samt ekki Sadí Arabíu 😂), en Íran var þarna með. Long story short, honum var snúið við á landamærunum, þrátt fyrir vegabréfsáritun/sænskt ótímabundið dvalaleyfi og fékk aldrei inngöngu!

    10. Equivalent_Day_4078 on

      Enda vil ég ekki taka áhættuna á því að lenda í gúlagi í El Salvador bara út af því að TSA finnur að ég hef talið illa um Trump á samfélagsmiðlum.

    11. Haha já gleymdu hugmyndinni, það er nóg annað að skoða í heiminum en USA.

    12. Ég fer árlega til útlanda og hafði planað að fara til Flórída í sumar en hætti við um leið og Trump vann er búinn að panta hotel og flug í sumar til nokkra evrópu landa fyrir tæpa milljón.

    13. Ég hef sjálfur engan áhuga á að vera skotinn 20 sinnum af löggu fyrir að teygja mig í skilríki sem hann bað mig að sýna sér.

    14. Ég hef heyrt að margi Íslendingar sem eru búsettir í Bandaríkjunum eru núna að flytja heim til að forðast þessa vitleysu

    15. Morvenn-Vahl on

      Held ég fari ekkert til BNA svo lengi sem það er líklegt að man fái 2-fyrir-1 díl til BNA og svo Guatemala.

    16. Óþarfa taugaveiklun hérna. Fer oft til BNA, Fór síðast í Febrúar og það hefur ekkert breyst. Immigration í Flórída og Colorado er þægileg en leiðinleg í NY, eins og alltaf. Fólkið er eins og það var

    17. Helpful-Wish1319 on

      Ég á von á barni með unnustu minni sem er frá LA. Stefnum á að fara í heimsókn um jólin og finn fyrir streitu við ferð þangað í fyrsta sinn. Er ekkert voða virkur á samfélagsmiðlum en það sem ég skoða væri kallað ultra vinstri þarna úti. Hef lesið fréttir um að þeir skrolli meira í gegnum prófíla fólks, sem þú gefur leyfi fyrir í ESTA umsókninni, eflaust einfalt mál með AI í dag.
      Planið er að flytja út einn daginn og ég hafði hugsað mér að bólstra landvörslu ferilskrá mína næstu árin og finna mér vinnu sem park ranger þarna úti. Það er ekki útlit fyrir mörg tækifæri í því á næstunni. Nú fara kaloríur í að pæla í þessum hlutum sem er ennþá nokkuð súrrealískt.
      Ekki það að ég muni láta þetta stoppa mig í að lifa mínu besta lífi.

    18. DarthMelonLord on

      Ég er með x í vegabréfinu mínu, ekki fræðilegur að ég fari aftur þangað í bráð. Var áður í töluverðum tengslum við bna, var í sambandi með kana í nokkur ár og á marga vini þarna úti

    19. Fyrsta og eina skiptið sem ég sótti bandaríkin heim lenti ég í nektarleit á JFK. Ég var 16 ára að koma frá Íslandi. Hefur aldrei langað aftur, get ekki ímyndað mér hvernig þetta er núna.

    20. Mysterious_Aide854 on

      Hætti við fyrirhugaða ferð til NY og MA í sumar. Bara nei takk.

    Leave A Reply