Share.

    6 Kommentare

    1. Johnny_bubblegum on

      SFS segir í morgunblaðinu að það sé ömurlegt fyrir alla ef kvótaeigendur verði látnir borga meira fyrir aðgang að fisknum.

      Í öðrum fréttum: það kemur nýr dagur á morgun og himininn er líklega enn blár.

    2. >Eins og reynd­in er í Nor­egi, mun fisk­ur þá í veru­leg­um mæli flytj­ast óunn­inn úr landi til rík­is­styrktra fisk­vinnsla í lág­launa­lönd­um á borð við Pól­land og Kína. Verðmæta­sköp­un hér á landi verður þar með minni, störf­um í fisk­vinnslu fækk­ar stór­um og af­leidd­ar tekj­ur þjón­ustu og iðnaðar verða hverf­andi.

      Ég er enganveginn búinn að kynna mér þetta, hvernig hlutirnir eru í Noregi t.d., en ef þetta er raunin er ekki gott að stíga varlega til jarðar.

      Segjum sem svo að þetta sé á dagskrá og heilu vinnslunar leggjast niður, hvert er tap ríkissjóðs og lífeyrissjóða vegna vinnutaps?

      Ég er 100% með því að það eigi að greiða aukalega fyrir afnot af auðlindum Íslands, en ef við ætlum að skattleggja fyrirtækin út, hver ætlar þá að veiða fiskinn? Ríkisreknar trillur aftur á dagskrá?

    3. Núna á þjóðin að græða meira á auðlindinni sinni en hvað gera þeir annað en að hóta því að færa sig til Kína. Hugsa bara um að halda hagnaðinum uppi á kostnað fólksins sem myndi þá missa vinnuna sína bara því Þorsteinn Már getur ekki hugsað sér að græða aðeins færri milljarða.

      Djöfull væri ég til að ríkisvæða þetta batterí og taka bara Landsvirkjunar módelið á þetta. Búa til nokkur ríkisfyrirtæki og dreifa þeim um landið. Skylda að efla og styrkja nærsamfélagið, auka aftur vinnslu í minni bæjarfélögum og hætta þessu smákónga rugli. Afgangs hagnaður rennur til ríkisins í formi arðs.

    4. GlitteringRoof7307 on

      **Yfirlýsing Samtaka Range Rover Seljenda (SRS):**

      *Samtök Range Rover seljenda (SRS) harma þær aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem miða að því að tvöfalda veiðigjöld og þar með gera íslenskan sjávarútveg ómögulegan. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að þetta muni leiða til „skelfilegs samdráttar í lúxusbílasölu á landinu“, þar sem „sægreifar sjá sér ekki lengur fært að kaupa Range Rover í fermingargjöf fyrir börnin sín“. Þá segir enn fremur að „íslensk auðlindastefna virðist nú beinlínis miða að því að koma í veg fyrir að unga fólkið okkar alist upp við loftkældar leðurinnréttingar og 22 tommu felgur.“ Samtökin hvetja stjórnvöld til að stíga varlega til jarðar og spyrja: „Ef ekki börn sægreifanna, hverjir eiga þá að fá Range Rover á fermingardaginn?“*

    5. ultr4violence on

      Það er ekki furða að mbl er búið að vera í herferð gegnt þessari ríkisstjórn.

    Leave A Reply