Share.

    1 Kommentar

    1. þar sem ég er í tímafrekri meðferð þessa dagana hef ég smá tíma í svona dundur eins og Sunnudagskrossgáta Morgunblaðsins er

      það er hins vegar leiðinlegra að vinna hana alltaf einn, og yfirleitt næ ég aldrei öllum orðunum, svo þessi krossgáta er að mínu mati tilvalin í multiplayer

      það mættu líka fleiri kunna á þessar vísbendingakrossgátur, þær gefa skemmtilega sýn inn í tungumálið okkar, svo ég setti smá infographics um hvernig vísbendingarnar eru samansettar

      [hér](https://i.imgur.com/GJzoCBX.png) er hrein kópía af krossgátunni

      [hér](https://i.imgur.com/u5VTmK5.png) er hrein kópía af krossgátunni, með þeim orðum sem ég er kominn með, án krots

      EDIT:

      1. Fimm í sundur út af dýri

      Fimm í sundur — dýr
      V í sundur — dýr

      Vísundur

      20. Hjá ríki dauðra bekri kiðlingur svakalega.

      Ríki dauðra = HEL
      bekri = JARMI
      kiðlingur = KIÐ
      HELJARMIKIÐ = svakalega

      28. Skreið klaki til stofnunar? (spurningamerki þýðir vafasöm vísbending, langsótt)

      Rann-ís = RANNÍS

      33. Skrifaðir niður páfuglaraðir

      að skrifa niður = pára, svo orðið hlýtur að vera PÁRAÐIR

    Leave A Reply