Share.

    9 Kommentare

    1. Jæja, Miðflokkurinn tekur af allan vafa að þeir ætla að vera heimili Trumpista á íslandi og þarmeð taka sér stöðu með Rússum.

    2. Hreint ömurlegt að sjá Miðflokkinn reyna að slá ódýrar pólitískar keilur þegar við erum í miðri utanríkispólitískri krísu. Ég bjóst við meiru af Snorra.

    3. Leiðinlegt að sjá Snorra falla fyrir þessu rugli. Ég hafði miklar mætur á honum í denn. Að geta horft á þennan fund á milli Zelensky, Trump og sleikipinnaunnandans Vance án þess fyllast viðbjóði yfir framkomu Trump er til merkis um brenglað siðferði.

      Ég vona að Snorri hristi þetta af sér með tímanum.

    4. Veit ekki afhverju Snorri virðist halda að Ísland eigi ekki að reka eigin utanríkisstefnu sem sjálfstæð þjóð.

      Hann virðist halda að við séum ríki í Bandaríkjunum.

    5. Bæði rangt og sorglegt hjá honum að fara niður á þetta plan.

      >Hvað þýðir það fyrir Íslendinga að utanríkisráðherra okkar gefi því undir fótinn að Bandaríkjaforseti teljist ekki lengur leiðtogi hins frjálsa heims? [Þessi orð snúast] um að ný stjórnvöld vestanhafs hugnist Íslendingum ekki.

      Þetta fylgir bara ekki.

      Kjarni þessarar krísu er einmitt að Bandaríkin virðast í grundvallaratriðum vera að breyta stefnu sinni frá í seinni heimstyrjöld um að vera í forgrunni í öryggislandslagi heimsins. Það kallar á algjöra endurhugsun á varmarmálum Íslands og Evrópu.

      Það er gott að utanríkisráðherra að setja áhersluna á réttan stað og lélegt hjá Snorra að skilja ekki muninn á þessu og einhverju „Trump bad“.

    6. GlitteringRoof7307 on

      Þetta mental gymnastics hjá fólki sem er allt í einu farið að réttlæta innrás rússa er sturlað.

      Miðflokkurinn er örvinglaður að reyna að skapa sér niche eftir að útlendingalögunum var breytt og það dró úr fjölda hælisleitendaumsókna.

    7. Utanríkisráðherra verður að skynja og lýsa heiminum eins og hann er og það er deginum ljósara að Bandaríkin hafa horfið frá því hlutverki að vera helsti bakhjarl og málsvari frjálsra ríkja í heiminum, hvort sem það er viljandi eða vegna skorts á trúverðugleika. Ég veit ekki hverjum Snorri heldur að sé greiði gerður með því að loka augunum fyrir því. Sýnist að hann sé fyrst og fremst að sækja í trumpista- og Pútínleppaatkvæðin.

    8. Trumpistar eins og Snorri sjá ekkert athugavert við það sem Trump gerir eða segir. Trump-kool-aidið er sannarlega sterkt. Ég meina, Snorri og Frosti Logason voru báðir sannfærðir um að nú væri gullöld Bandaríkjanna að hefjast. En ég get með engu móti séð annað en að Bandaríkin séu að einangra sig og færast aftur til fortíðar—kannski alla leið til 18. aldar? Að minnsta kosti er þetta engin gullöld, þar sem mannréttindi og lífsgæði skerðast smám saman á meðan milljarðamæringarnir maka krókinn.

      Verðbólgan í Bandaríkjunum er aftur farin að hækka eftir að Biden-stjórnin hafði náð henni niður í 2,5%. Vörur hækka í verði og þetta tollastríð mun aðeins gera illt verra. Millistéttin blæðir á meðan Trump-stjórnin hyggst skera niður allt sem hægt er og virðist vera á góðri leið með að rétta Rússum Bandaríkin á silfurfati.

      Þannig að ég skil ekki alveg á hvaða vegferð Snorri er. Hann hlýtur að sjá hvert þetta stefnir—vonandi.

      Og áður en Trumpistar koma og segja við mig: „Þú ert bara ‚Trump bad symtrom“. Það er alveg rétt að ég hef alltaf verið á móti Trump, en ég sagði eftir síðustu kosningar að ég myndi hæla honum ef hann héldi áfram að styðja Úkraínu, styrkti stöðu NATO og hætti við allt þetta tollastríðs- og einangrunarbrölti sem hann hafði lofað. En jæja, Jeddúa mía—hann er enn verri en ég átti von á. Ég hélt í einfeldni minni að hann myndi kannski ekki fara alla leið í öfgarnar, en sú von er löngu úti.

      Og þeir sem kölluðu það samsæriskenningu að halda því fram að Trump væri strengjabrúða Pútíns ættu að éta skóinn sinn. Það þarf enga Mueller-skýrslu til að sanna eitt né neitt—það er öllum ljóst að Trump er strengjabrúða Pútíns, og alþjóð sér það. Ég veit að margir innan raða sósíalista og miðflokks eru enn í bullandi afneitun, eins og sést í Sósíalistaspjallinu og nú á skrifum Snorra, en vonandi fara þeir að viðurkenna það hægt og rólega: Við sem sögðum frá 2016 að Trump væri í vasa Rússa höfðum rétt fyrir okkur. Það er bara opinbert núna.

      Kæri Snorri nú er ekki tími til þess að vera með kreml áróður.

    Leave A Reply