Share.

    6 Kommentare

    1. Skrýtið hvað hámenntaður fólk eru lengi að skilja þetta. Kennarar væru ekki að fá meiri en aðrir. Þeir eru að reyna að jafna laun sín miðað við sambærileg störf. Jafnmikið er ekki meira. Kennarar gáfu upp viss réttindi fyrir mörgum árum til að þetta færi í gegn. Þeir eru með lægri laun miðað við sambærilega menntun og ábyrgð. Ekki meira.

    2. Johnny_bubblegum on

      Legg til að fjármagna þessar hækkanir með sérstökum gjaldtökum á Samtök atvinnulífsins.

      Getum kallað það frekjuskattinn eða sjálfumgleðigjaldið eða forréttindaframfærslu.

      Samtök Atvinnulífsins hafa markvisst unnið að því að þau ein sjái um alla kjarasamninga í landinu við launafólk, eins og það sé bara eðlilegt að þeirra samningar séu þeir sem allir sama hvað skuli aðlaga sig að og halda sig við.

      Og eins og venjulega birtir vísir tilkynningar SA sem “frétt” með nákvæmlega engri gagnrýni eða spurningum frá fréttamanni. Fyrirtæki greiða fyrir svona umfjöllun venjulega hjá vísi og er merkt samstarf.

      Það þarf að fara að lækka rostann í þessum samtökum. Heimtufrekjan er yfirgengileg, svo mikil að Margrét er farin að skipta sér að samningagerð sem SA eiga enga aðild að.

    3. Hvers vegna er alltaf verið að tala við sama fólkið? Fólkið sem óttast og hugnast ekki, alltaf sama vælið.

      Engar lausnir og halda kennurum niðri á skammarlega lágum launum.

    4. Woodpecker-Visible on

      Ein pæling með kennaramentunina. Er þetta ekki frekar teygt nám (5 ár) sem væri hægt að þjappa niður í 3-4 ár. Fynst það vera soldið mikið nú til dags montið snúast meira um lengd náms en ekki hversu intense það er. Eithvað til í þessu hjá mér?

    5. AngryVolcano on

      Þetta er raunar rosalega einfalt. Ef kennarar fá ekki „meira en aðrir“, þá munu þeir sitja eftir á sama stað og þeir voru þegar samþykkt var að jafna laun þeirra að því sem aðrir sérfræðingar með sambærilega menntun væru að fá.

      Hér á að sjálfsögðu að horfa á heildartölur, en ekki prósentuhækkun. Prósentuhækkun á lág laun er miklu minna heldur en sama prósentuhækkun á há laun.

      Í stuttu máli, kennarar verða að fá „meira en aðrir“ því þeir eru að fá „minna en aðrir“, þrátt fyrir samninga sem gerðir voru um akkúrat það fyrir 9 árum síðan.

    Leave A Reply