Share.

    4 Kommentare

    1. “Eitruð jákvæðni”, hvernig er hægt að vera svona veruleikafirrtur?

    2. Proper_Tea_1048 on

      Steinni gerir lítið annað en að skemma fyrir sínum eigin málstað. Gæti sagt svo mikið neikvætt um hann og hans hegðun en það er óþarfi að sparka í liggjandi mann.

    3. wheezierAlloy on

      Samfélagið í dag virðist að mínu mati stundum frekar vilja losna við óþægindi og vandamál heldur en að kenna fólki að takast á við þau. Ef barn finnur fyrir kvíða eða líður illa, þá er það oft strax talið vera vandamál sem þarf að laga með lyfjum, frekar en að skoða umhverfið, uppeldið eða hjálpa barninu að læra að vinna úr tilfinningunum sínum á heilbrigðan hátt. Seigla er lykilatriði í andlegri vellíðan, og ef börn fá ekki tækifæri til að þróa með sér þann hæfileika að takast á við mótlæti, getur það haft neikvæðar langtímaafleiðingar.

      Auðvitað eru til tilfelli þar sem lyf eru nauðsynleg, ég neita því ekki en ef fyrsta lausnin við kvíða er að grípa í pillur í stað þess að reyna að finna aðrar leiðir, þá er eitthvað að. Það þarf að leggja meiri áherslu á að kenna börnum hvernig á að stjórna tilfinningum sínum, takast á við áskoranir og byggja upp seiglu – eitthvað sem virðist oft gleymast í dag.

      Heimild: Menntaður í náms og starfsráðgjöf

      Þorsteinn þarf að fatta að halda munninum lokuðum á réttum augnablikum

      Eða bara alltaf

    4. Ironmasked-Kraken on

      Fyndnasri parturinn í þeirra svari:

      „Veit Þorgrímur Þráinsson hvað konur þurfa að leggja mikið á sig til að öðlast credability og fá platform til að tjá skoðanir sínar? Hversu margar konur fæddar 1959 með stúdentspróf séu jafn mikið að a) tjá sig um málefni sem b) þær eru  ekki sérfræðingar í og c) hafa jafn mikið platform til að miðla þeim? Sennilega engin. Aldrei.“

      Umræðan snýst um börn en einhvernveginn verða þau að troða kynjastríðinu sínu inní 🙄 þessi tvö hafa skemmt mun meira fyrir þessari baráttu en þau hafa hjálpað

    Leave A Reply