Share.

    3 Kommentare

    1. > „MS og Bænda­sam­tök­in þrýstu á stjórn­völd að flokka vör­una í 4. kafla toll­skrár­inn­ar, sem ber háa tolla. Látið var und­an þeim þrýst­ingi og bar yf­ir­toll­vörður fyr­ir dómi í máli Danóls gegn rík­inu að fjár­málaráðuneytið hefði gert embætt­inu að „fremja ólög“. Heil deild hjá Skatt­in­um sagði sig frá mál­inu í fram­hald­inu en toll­flokk­un­inni var engu að síður breytt,“ að því er FA seg­ir.

      >Þá kem­ur fram að ost­ur­inn hafi verið flutt­ur inn frá Belg­íu. „Toll­flokk­un ís­lenskra stjórn­valda var í and­stöðu við af­stöðu belg­ískra tolla­yf­ir­valda, form­lega af­stöðu fram­kvæmda­stjórn­ar Evr­ópu­sam­bands­ins og túlk­un Alþjóðatolla­stofn­un­ar­inn­ar (WCO). Evr­ópu­sam­bandið lét á málið reyna hjá WCO og komst toll­flokk­un­ar­fund­ur stofn­un­ar­inn­ar að þeirri niður­stöðu í mars 2023 að var­an ætti að flokk­ast í 21. kafla toll­skrár­inn­ar. Íslensk stjórn­völd hafa neitað að fara eft­ir þeirri niður­stöðu og m.a. borið fyr­ir sig dóm í máli Danóls gegn ís­lenska rík­inu, en fyr­ir ligg­ur að dóm­ur­inn var leynd­ur gögn­um, m.a. um af­stöðu Evr­ópu­sam­bands­ins og WCO,“ seg­ir jafn­framt.

      Kemur það einhverjum á óvart að fjármálaráðuneyti Bjarna Ben hafi látið sérhagsmuni ráða för og sett gríðarháa tolla á vöru svo að MS þyrfti alveg pottþétt ekki að vera í alvöru samkeppni?

      > Ólaf­ur Stephen­sen, fram­kvæmda­stjóri FA, seg­ist í til­kynn­ing­unni fagna viðsnún­ingi stjórn­valda. „Fyr­ir ligg­ur að fé­lags­maður Okk­ar varð fyr­ir hundraða millj­óna tjóni vegna rangra ákv­arðana stjórn­valda. Það blas­ir við að fyr­ir­tækið sæki það tjón á hend­ur stjórn­völd­um,“ seg­ir Ólaf­ur.

      Svo ekki bara er Ísland bara komið á skammarlista ESB, þá er það líka að öllum líkindum bótaskylt upp á einhverja hundruði milljóna, allt í boði Bjarna Ben og Sjálfstæðisflokksins.

    Leave A Reply