Share.

    1 Kommentar

    1. Ég var að horfa á þennan Kompás þátt á Stöð 2. Þetta var mjög erfiður þáttur.

      En eitt sem kom fram í honum vakti athygli mína. Forráðamenn 16 ára drengs sem kom heim um kvöldið blóðugur með hníf af Menningarnótt brugðust við því með því að senda hann í sturtu, þvo af honum blóðug fötin og koma vopninu sem á að hafa verið notað fyrir í bakpoka sem lögreglan fann svo í skotti bíls forráðamanns drengsins. Þau lugu svo til í skýrslutökum um atburðarásina og voru handtekin, grunuð um hylmingu.

      ###### Málið var sent til saksóknara þar sem það var fellt niður vegna náinna tengsla aðilanna sem um ræðir.

      Þetta kemur mér á… óvart? Hefur reynt á þessi lög áður og það endað með þessum hætti? Má hylma yfir sönnunargögn af alvarlegustu glæpum sem þú getur framið á Íslandi, svo lengi sem gerandinn sé einhver sem er nægilega nákominn manni?

    Leave A Reply