Brúðarbunga? Bárðarbrunga? Brúbrúbrunga? Nei ég gefst upp.
birkir on
– Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna kröftugrar jarðskjálftahrinu sem hófst í Bárðarbungu skömmu eftir klukkan sex í morgun.
– Verulega hefur dregið úr virkninni en náttúruvársérfræðingur segir aðra hrinu geta hafist á næstu klukkutímum eða næstu dögum.
– Sérfræðingar segja skjálftavirknina óvenjulega. Líkur séu á að hún tengist kvikuinnskoti.
– Náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands segir skjálftahrinuna minna á aðdraganda eldgoss í Holuhrauni árið 2014.
– Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir mikla kviku hafa safnast undir Bárðarbungu á þeim áratug sem liðinn er frá því að þar varð öskjusig.
– Oftast þegar gýs frá Bárðarbungu kemur kvikan ekki upp úr öskjunni sjálfri, heldur ferðast annað, líkt og gerðist í gosinu í Holuhrauni.
– Verði gos í öskjunni sjálfri fylgir því jökulhlaup.
– Fluglitakóði fyrir eldstöðina hefur verið færður á gulan.
>„Þarna er kvikusöfnun í gangi. Þessi skjálftahrina er til marks um aukna þenslu. Þetta er öflugasta hrinan sem við höfum mælt síðan að síðustu umbrot voru í Bárðarbungu á árunum 2014 til 2015 samfara eldgosi í Holuhrauni sem stóð yfir í sex mánuði.“
>
>*Hvert teljið þið að framhaldið verði?*
>
>„Það er ómögulegt að segja. Við verðum augljóslega að fylgjast mjög vel með. Það sem er mjög flókið í þessu er að þetta er mjög stór eldstöð. Það eru margar sviðsmyndir sem koma til greina. Eldstöðin er að hluta til jökulhulin sem að þýðir það að ef það verður eldgos undir jökli að þá fáum við öskugos og það getur komið til jökulhlaupa. Og svo höfum við líka séð hin dæmin þar sem að eldgos verður fyrir utan jökul og verður hraungos eins og síðast varð. En það er bara fullsnemmt að segja eitthvað til um það núna. Nú er það fyrst og fremst að fylgjast vel með og vera við öllu búin.“
>
>Ekki hefur gosið í Bárðarbunguöskjunni sjálfri á sögulegum tíma. Askjan er engin smá smíði. Hún er tíu kílómetrar í þvermál. Jökulísinn í öskjunni er 800 metra þykkur. Til samanburðar er Esja níu hundruð metra há. Þensla hefur verið í Bárðarbungu síðan 2015 og skjálftavirkni hefur aukist undanfarna mánuði segir Kristín.
>
>„Veðurstofan er búin að hækka fluglitakóða. Við erum komin á gult. Það er snemmt að segja til um þetta hvort að það verði gos og þá hvar það verður. En jú vissulega þá er það ein sviðsmyndin að það verði gos inni í öskjunni og samfara gosi sem er undir jökli að þá má búast við því að jökullinn bráðni að það safnist vatn sem komi svo fram síðar í jökulhlaupi.“
12:51 – Mögulegt áhrifasvæði nær yfir þrjú lögregluumdæmi
>Óvissan um hvað gæti gerst er mikil og vatn gæti hlaupið undan jökli á ólíkum stöðum. Til marks um umfangið, þá nær mögulegt áhrifasvæði vegna eldsumbrota yfir þrjú lögregluumdæmi. Þetta segir Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri Almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra.
>
>Runólfur segir mikilvægt að fyrirtæki og stofnanir á áhrifasvæðinu fari yfir sínar áætlanir og búi sig undir allar sviðsmyndir. „Þetta getur haft áhrif þarna inn á hálendið. þetta getur líka haft áhrif á vatnasvið Þjórsár og þá erum við að tala um virkjanir og annað,“ segir Runólfur.
>
>Þá þurfi einnig að vinna með ferðaþjónustuaðilum til að sjá til þess að ferðamenn verði ekki í hættu.
12:55 – Gæti gosið undir jökli eða utan hans
>Kristín Jónsdóttir deildarstjóri á Veðurstofunni segir of snemmt að segja til um hvort fer að gjósa og þá hvort það verði undir jökli eða utan hans eins og í Holuhraunsgosinu fyrir tíu árum.
>Um 130 jarðskjálftar hafa mælst frá því að hrinan hófst og mældist stærsti skjálftinn 5,1 að stærð kl. 8.05 í morgun, samkvæmt uppfærðu mati Veðurstofunnar, en hann hafði áður verið metinn 4,9 að stærð.
Don_Ozwald on
Bárður þarf að hætta að klæða sig svona druslulega þegar bungan hans er orðin svona áberandi. Hneyksli!
Leave A Reply
Du musst angemeldet sein, um einen Kommentar abzugeben.
3 Kommentare

12:38 – [Öflugasta hrina í 10 ár](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-01-14-oflugasta-hrina-i-tiu-ar-432959)

13:02 – Mbl: [Kröftugasta hrinan frá síðasta gosi](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/01/14/kroftugasta_hrinan_fra_sidasta_gosi/)